Nasismi

Að dæma heila þjóð af því sem stjórnvöld ákveða er fráleitt. Slíkt er ekki hægt að kalla annað en nasisma. Sama hvaða þjóð á í hlut eða hvaða trú hún aðhyllist.

Sumir setja sama sem merki við gyðinga og zionista. Það er eins og að kalla alla íslendinga sjálfstæðismenn, af því sá flokkur hefur verið lengst við völd frá endurreisn sjálfstæðisins. Eða kalla alla Bandaríkjamenn Trumpista, af því það gamalmenni var við völd þar eitt kjörtímabil. Eða að setja alla Palestínumenn undir hatt Hamas. Málflutningur þessa fólks er fráleitur.

Það er ekki til fyrirmyndar hvernig stjórnvöld í Ísrael haga sér og sjálfsagt að fordæma það. Einnig má fordæma árásir Hamas fyrir það að ráðast gegn saklausum borgurum, limlesta þá, taka af lífi og sverta líkin. Og hæla sér af ódæðinu í vefmiðlum. Þar kom almenningur í Palestínu ekkert að verki, ekki frekar en ferðafólk frá Ísrael, sem sækir land okkar heim beri ábyrgð á þeim hörmungum er ríða yfir Palestínu. Þarna berjast vitfirringar á báða bóga. Það á ekki og má ekki dæma viðkomandi þjóðir af verkum þessara vitfirringa.

Þeir sem slíkt gera eru engu betri en nasistar Þýskalands, fyrir miðja síðustu öld.


mbl.is Vilja ekki veita Ísraelum þjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru hatursglæpir! Ósvífnir hatursglæpir gagnvart Gyðingum. Hvar er Rauði Krossinn, mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur og hinsegin samtökin núna?

Eru svona glæpir er sérstakt áhugaefni Katrínar Jakobsdóttur, hún hlýtur að eiga sérstaka grettu eða geiflu fyrir þetta mál.

Það myndi nú heyrast hljóð út horni ef að múslimum eða hommum yrði bannað að fara í Vök baðlón á Egilsstöðum. RÚV væri með böggum hildar!

Þorsteinn Styrmir Jónsson (IP-tala skráð) 12.11.2023 kl. 16:53

2 Smámynd: Loncexter

Það má segja ýmislegt um gyðinga, og þeir segja líka ýmislegt um kristni.

Gyðingar eiga ekkert erindi á íslandi, þar sem ísland hefur byggt sína menningu og trú á Kristni.

Kristni er á hröðu undanhaldi hér virðist vera, og sú hröðun eykst snarlega með fleiri gyðingum !

Það endar því miður ekki vel.

Loncexter, 12.11.2023 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband