Búnir að semja en vita bara ekki um hvað !!

Þetta lýsir vel þeirri vitfyrringu sem ríkir í herbúðum ASÍ, undir forustu Gylfa Arnbjörnssonar, vinar og hellsta bandamanns Vilhjálms Egilssonar.

Það er búið að semja um eingreiðslu þann 1. mars, en þeir vita þó ekki hversu háa né hvort um prósentu eða krónutöluhækkun er að ræða! Vilhjálmur á eftir að tilkynna þeim það!

Það er búið að semja til þriggja ára, en þó er ekki vitað um hvað! Vilhjálmur hefur ekki enn sagt þeim það!

Þá segir Finnbjörn að vinnan gangi vel, en hann virðist þó ekki vita hvaða vinna!! Enda ekki von, þar sem þeir félagar Gylfi og Vilhjálmur halda þeirri vinnu fyrir sig, aðrir fá bara að vita niðurstöðuna sem Vilhjálmur lætur Gylfa samþykkja!!

Það er magnað að verða vitni að því rugli sem í gangi er, ekki aðeins hafa þeir sem telja sig öðrum hæfari til að ákveða kjör launafólks, bannað því að semja á frjálsum og eðlilegum grundvelli, heldur hafa þeir skaðað samtök launafólks og fært gagnaðilanum öll vopn sem launafólkið hafði.

Þessir menn hafa unnið verkalýðshreyfingunni meira tjón en orðum verði lýst og fært hana aftur fyrir miðja síðustu öld!! Aumingjaskapur og gunguskapur þessara manna er algjör og þeim til háborinnar skammar!!

Sögubækur framtíðar munu nota aðferðir þessara manna sem eitt besta dæmið um hvernig á að sundra og eyðileggja samtök sem byggð eru til að standa vörð sinna félagsmanna, sem dæmi um hvernig best er að rífa slíkan félagsskap niður innanfrá!!

 


mbl.is Launahækkun gildi frá 1. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband