N-K-P

Í tæpa hálfa öld var starfrækt áburðarframleiðsla á Íslandi. Þar var reyndar einungis framleitt nitur, eða köfnunarefni (N), en önnur íblöndunarefni flutt til landsins. Tilbúinn túnáburður samanstendur að stærstum hluta til af nitur(N), en einnig eru í honum kalí (K) og fosfór, eða þrífosfat (P). Af þessu kemur skammstöfunin N-K-P. Auk þess eru ýmis önnur bætiefni í túnáburði s.s. kalsíum, brennisteinn og í einstaka tilfellum bór. Öll eru þessi efni til að bæta og efla gróður túna.

Nútímabóndinn lætur rannsaka tún sín og kaupir síðan þann áburð sem hentar hverju túni. Það er gert til hámarka afurðir og lágmarka kostnað, að einungis sé borið á það sem þarf. Enda tilbúinn áburður sennilega stærsti einstaki kostnaðarliður bænda. 

En nú horfir illa. Framleiðsla á tilbúnum áburði, sér í lagi nitur, eða köfnunarefni, krefst mikillar orku. Eins og áður segir fór sú framleiðsla fram hér á landi í nærri hálfa öld. Eftir að EES samningurinn tók gildi reyndist ekki lengur rekstrargrundvöllur fyrir slíkri verksmiðju og var starfsemin lögð niður. Ódýrara var að flytja bara inn áburð, frá Evrópu.

Af ástæðum sem ekki verða raktar hér, er nú svo komið að raforkuverð þar ytra er orðið svo hátt að áburðarverksmiðjur loka. Verðið á tilbúnum áburði hefur þegar hækkað um 140%, en það dugir ekki til. Því munu bændur ekki bara standa frammi fyrir þeirri staðreynd að áburðarverð verði óviðráðanlega hátt fyrir þá, meiri líkur eru á að áburður muni bara alls ekki fást í vetur.

Það vekur upp spurningu um hvort ekki sé kominn grundvöllur fyrir slíkri framleiðslu hér á landi. Við eigum nægt rafmagn. Þá er nokkuð til að vinna í kolefnisspori og gjaldeyrissparnaði að framleiða áburð hér á landi. Þar sem EES samningurinn virkar jú í báðar áttir, eða svo er manni sagt, er kjörið fyrir okkur að hugsa stórt í þessu sambandi og framleiða einnig áburð fyrir lönd á meginlandinu. Engar líkur eru á að orkuverð þar ytra eigi eftir að lækka sem neinu nemur, auk þess sem sú orka sem notuð hefur verið til þessarar framleiðslu kemur að stórum hluta frá orkuverum sem knúin eru jarðefnaeldsneyti.

Það væri ekki lítil uppbót fyrir landið okkar, ef við gætum selt út hreina afurð, í stað þess að hún sé framleidd óhrein erlendis. Þá munum við ekki einungis spara gjaldeyri heldur afla hans að auki. Og bændur á meginlandinu gætu barið sér á brjóst og sagst nota hreinan áburð, án þess að þurfa að vera í einhverjum vafa um hreinleikann.

Hins vegar er ástandið graf alvarlegt eins og staðan er í dag. Þegar hefur verð hækkað langt umfram það sem nokkuð bú getur borið og líklegt að algjör skortur muni verða næsta vor, á þessari lífnauðsynlegu vöru fyrr bændur. Einhverjum gæti dottið í hug að segja að bændur hætti bara að nota tilbúinn áburð og beri bara skít á túnin. Jú, jú, það eru svo sem rök. En án tilbúins áburðar verður sprettan minni, sem þýðir að bændur þurfa þá að stækka tún sín og stækkun túna þýðir að þurrka þarf þá upp fleiri mýrar. Mýrar verða ekki þurrkaðar upp á einni svip stundu og tún verða ekki ræktuð í einni svipan. Þá er ekki alveg í takt við tíðarandann að bændur taki upp á því í stórum stíl að ræsa fram mýrar.

Þá er kannski rétt að benda á að framleiðsla á nitur, eða köfnunarefni, er í raun binding kolefnis úr andrúmslofti. Aukaafurðin sem til verður við þessa framleiðslu kallast súrefni (O2). Þannig að kolefnisbókhald þjóðarinnar mun þá njóta góðs af.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Var hún þarna í hálfa öld? hélt hún yrði eilíf. Ég átti leið þangað oft í mánuði,þar fengu strákarnir mínir vinnu á sumrin.það hefði liklega verið bannað í dag að þeir lyftu 50kl pokum,en þeir stærðu sig af því,tóku þá stundum milli sín og fleygðu upp á vagn.Þeir vildu þéna á sumrin og afi þerra sem hafði flutt frá Akranesi og hætt að stýra fisibátum H.B. var þeim innan handar eftir að hann tók að vinna þar. ---- Ráðamenn eru duglegir að farga því sem dugar okkur vel,en lengi var rekinn aróður gegn fjárbúsap,sem ku hafa nagað upp gróin börð,en menn hafa bent á´það gagnstæða og fólk af mölinni elskar að byggja sér bú sem veitir þeim vinnu og sitt eigið kál. Einhvernvegin verð ég að orða það til að hætta........  

Helga Kristjánsdóttir, 21.10.2021 kl. 03:47

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Það borgar sig að reka áburðar verksmiðjuna, jafnvel með tapi, þá bjóða útlendu verksmiðjurnar lægra verð, og Ísland græðir. 

Þetta var sagt í umræðunni um að leggja áburðar verksmiðjuna niður. 

Ég er ekki að segja hvað við eigum að gera í þessu máli núna. 

En við áttum ekki að selja peningaprentvélina, við áttum ekki að selja greiðslumiðlunina, við áttum ekki að selja dreyfikerfi fyrir upplýsingar, Mílu. 

Ræður ríkistjórnin nokkru. 

Er þeim ef til vill skipað, gerðu þetta og þetta og vertu ekki með múður. 

Hvernig getum við þá frelsað Ríkistjórnina? 

Eru þau öll klístruð, sagtn er að öll sem eru í forustu fyrir þjóðunum, hafi verið klístruð. 

Því er líst hér.

slóð  

Hjálpa þeim klístruðu til að bjarga öllum. Flutningastjóri sagði mér hvernig samningamenn Íslands við Rússland lenntu í því að næsta morgun voru komnar þessar fínu myndir af samkvæminu þar sem hver og einn var umvafinn ungum draumadísum.

Jónas Gunnlaugsson | 3. september 2021

Hvernig getum við hjálpað þessum klístruðu og losað okkur þannig úr pestar, influenzu svindlinu? 000 Laga eitthvað. Sett á blogg: Geir Ágústsson Fimmtudagur, 2. september 2021 Gott dæmi um meingallaða blaðamennsku 000 Það eru örfáir sem heyra frá okkur.

Medicare er að borga sjúkrahúsum $ 13.000 (1.660.360 kr) fyrir sjúklinga sem eru lagðir inn með COVID-19 sjúkdómsgreiningar og $ 39.000 (4.981.080 kr) ef þessir sjúklingar eru settir í öndunarvél.

Jónas Gunnlaugsson | 25. ágúst 2021

000 https://www.factcheck.org/2020/04/hospital-payments-and-the-covid-19-death-count/ 000 Þetta er smá sýnishorn úr greinum um greiðslur til Heilbrigðisþjónustu í útlandinu. Fá læknar og spítalar meira greitt fyrir Covid-19 sjúklinga … Are Doctors

Klístraðir, hleraðir, myndaðir. Erum við allir klístraðir, hleraðir, myndaðir, fylltir, eftir fundi, teknar upptökur, með unglingum, og svo hótað birtingu á sviðsetningunni, og þá samþykkjum við allt, svo sem ÍSAVE, og svo sem ORKUPAKKA 3. Skáldsaga.

Jónas Gunnlaugsson | 6. mars 2021

Spurning? Hvað er rétt? Hvað er satt? Skáldsaga? Þessi skrif eru byggð á greinum sem ég hef lesikð. Ef ég hef misskilið eitthvað, þá laga ég það. Þingmenn geta ekki varið okkur, þeir verða klístraðir, hleraðir, myndaðir, fylltir, eftir fundi, teknar

Auðvitað á að banna eitthvað sem kallast klámmyndir af fólki, en ekki ef fólkið leifir það. Hver þorir að neita um birtingu nú, þegar lögreglan verður að fela sig og kalla lögreglur úr sveitinni sem enginn þekkir.

Jónas Gunnlaugsson | 17. febrúar 2021

 

Segja það án þess að segja það. Hver getur sagt nei? Þingmaður. Þetta er í fjölskyldunni. Muna að ef lögreglan þarf að fela sig, hvernig geta þá Jón og Gunna sagt nei, engin klámmynd. 000 Muna að þegar þingmennirnir voru klístraðir, hljóðupptaka af

Egilsstaðir, 21.10.2021   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 21.10.2021 kl. 12:01

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Lindum (áður ÍSAGA) verksmiðjan í Reykjavík vinnur 800 m3/klst af súrefni og köfnunarefni (Nitur) samkvæmt heimasíðu. 78% nitur 21% O2 í lofti
Veit ekki hversu flókið það er síðan að binda gasið Nitur í fast form.
Svo eru það sementsverksmiðjurnar  þær eru núna víða að loka í Svíþjóð og Danmörku

Grímur Kjartansson, 21.10.2021 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband