Trú Álfheiðar Ingadóttur lítil

Það verður ekki sagt annað en trú Álfheiðar Ingadóttur á tillögum stjórnlagaráðs er frekar lítil. Hún telur að þessar tillögur muni ekki lifa af næsta kjörtímabil.

Er ekki frekar sóðalegt að vilja samþykkja tillögu að nýrri stjórnarskrá sem taliin vera orðin úrelt á innanvið fjórum árum?

Það verður ekki annað sagt en að lítið hefur þá fengist fyrir mikla peninga!

 


mbl.is Ekki aftur snúið með stjórnarskrána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held þú hafir lesið eitthvað skakkt því þingmaðurinn segir eftirfarandi:

"Við erum komin hingað með fullmótað plagg eins og kallað hefur verið eftir.“
og 

„Að hafna því sem við erum hér með í höndunum er gjörsamlega óskiljanlegt,“

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 6.3.2013 kl. 17:35

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er rétt. Jón, en hún hefur einnig áhyggjur af því að ef málið fari í bið muni tillögur stjórnlagaráðs vera orðnar sex ára gamlar þegar kemur að þinglokum næsta kjörtímabils og gefur í skyn að þá verði þær orðnar úreltar!

Gunnar Heiðarsson, 6.3.2013 kl. 18:11

3 identicon

Það er líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn komist í meirihluta. Ég skil það þannig að hún óttist að Sjálfstæðismenn noti það sem afsökun.

Þar sem sjálfstæðisflokkurinn er á móti mörgu af því sem stjórnlagaráð leggur fram munu þeir einfaldlega benda á að þeir hafi fengið umboð frá þjóðinni. Hvort ættu þeir að taka mark á frekar? 6 ára vilja þjóðarinnar eða 4 ára vilja þjóðarinnar?

Gunnar Eyþórsson (IP-tala skráð) 11.3.2013 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband