Stefán er bjartsýnn

Það verður að segjast eins og er að viðleitni Stefáns er þakkaverð, en bjartsýni mannsins er vissulega mikil.

Hann telur brýnt að góð þáttaka verði í kosningu um samninginn og það í félagi þar sem einungis 17% kusu til stjórnar fyrir skemmstu! Fyrir það fyrsta er þessi samningur þannig að hvorki er hægt að samþykkja hann né fella, svo aumingjalegur er hann.

Vissulega mun starfsfólk í verslunum njóta mestu hækkunar samningsins, enda það fólk á svo skammarlegum launum að vart er hægt að tala um þau. En því miður verður það fólk lítið betur sett eftir samninginn, hækkunin sem það fær, þó ágæt sé í prósentum talið, er ekki upp á svo margar krónur.

Þegar nefnd ríkisstjórnarinnar komst að því síðasta sumar að lágmarksviðmið launa hafi þá verið rúm 200.000 í ráðstöfunartekjur, semja þessir menn um að heildar lágmarkslaun skulu vera sú sama upphæð EFTIR ÞRJÚ ÁR!!

Sveiattan!!

 


mbl.is Reyna að fá fólk til að kynna sér kjarasamninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Mann setur hljóðan! Er hægt að búa hérna lengur? Hér á landi getur enginn rekið fyrirtæki sem getur borgað laun sem hægt er að lifa á. En sjálfir aka forstjórarnir um á bílum sem kosta jafn mikið og 10 -12 manns eru 1 ár að vinna fyrir! og búa í lúxus villum. Þegar fólk sér svona lagað fyllist það vonleysi og lítur á sig sem 4. flokks manneskjur!!!! Miklir andskotans aumingjar eru þeir sem semja um þessi laun!!!!!!!!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 19.5.2011 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband