Frjálslega farið með sannleikann

Í júlí 2008 fór verð á olíu í hæðstu hæðir á erlendum mörkuðum. Þá var tunnan seld frá OPEC rikjunum á US$ 140.  Dollar kostaði þá 77 kr. en á Íslandi kostaði bensínið 181,90 kr/l.

Nú er verð frá OPEC ríkjunum US$ 109,55, dollarinn kostar 116 kr. en bensínið kostar hjá okkur 237,90 kr/l.

Þessar upplýsiningar eru fengnar af heimasíðum OPEC, Seðlabankans og Skeljungs.

Menn geta svo leikið sér að því að reikna, en hægt er að benda á að samkvæmt þessum upplýsingum kostaði einn líter af olíu á erlendum mörkuðum 67,80 krónur í júlí 2008 en nú kostar þessi sami líter 79,92 krónur. Á sama tíma hefur verð til neytenda hækkað úr 181,90 kr/l, í 237,90 kr/l.

Vissulega hefur ríkið aukið sína skattheimtu af eldsneyti, en það skýrir þó ekki þennan mun.

Það má ekki heldur gleyma þeirri staðreynd að laun hins almenna launamanns í landinu hefur nánast ekkert hækkað þennan tíma.

 


mbl.is Bensín hækkar vegna Líbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú meinar; ,,logið", ekki ,,frjálslega farið með sannleikann".

Peppi róni (IP-tala skráð) 9.3.2011 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband