Hvar er Gylfi Arnbjörnsson?

Það er ágætt ef atvinnurekendur eru farnir að standa vörð launþega, ekki veitir af. ASÍ og flest stéttafélög hafa ekki staðið sig sem skildi í þeim efnum.

Það er með ólíkindum hvað forseti ASÍ er undirgefinn stjórn Jóhönnu og sýnir þetta og sannar enn eina ferðina að pólitískir flokkadrættir ráða frekar för í herbúðum ASÍ en hagsmunagæsla launþega!

Gylfi Arnbjörnsson ætti að skammast sín og segja af sér sem forseti ASÍ, hann getur örugglega fengið eitthvað gott starf hjá vinum sínum í ráðuneytum Samfylkingar. Það yrði ekki í fyrsta sinn sem einhver er ráðinn þar eftir flokksskírteini!!

 


mbl.is Kaupmáttur rýrnar um 1%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er sammál þér með það hvað stéttarfélögin í landinu eru flesst orðin máttlaus og rænulaus í að tala fyrir hönd sinna félagsmanna.  Maður heyrir eiginlega bara í formanni verkalýðsfélags Akranes berjast fyrir fólkið sitt og berjast við sofandi ASÍ.  En það er auðvitað reynt að þagga niður í honum innan ASÍ.

Þorsteinn Bjarki Ólafsson (IP-tala skráð) 20.11.2010 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband