Kemur ekki á óvart

Þessi samþykkt Samtaka verslunar og þjónustu (svþ) kemur ekki á óvart. Formaður þessara samtaka er Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff á Íslandi.

Margrét hefur verið dugleg að mæra ESB og inngöngu Íslands í þau samtök. Þá hefur hún áður beytt svþ til að reyna að koma höggi á bændastéttina, án árangurs. Megin tilgangur þessarar samþykktar nú er þó að reyna að koma höggi á Jón Bjarnason, enda Margrét félagi í Samfylkingunni.

Það er þó hætt við að niðurstaða Eftirlitsstofnunar EFTA verða á sama veg og áður, þegar þetta hefur verið borið á borð þeirra, að samkvæmt samningum Íslands að EES sé þetta löglegt. Þetta er nefnilega ekki í fyrsta sinn sem slík kæra hefur verið send til dómsstólsins og hann hefur ekki talið sig geta tekið málið til efnislegrar umfjöllunar vegna ákvæða í samningnum.

Þetta er enn eitt örvæntingarráðið hjá Samfylkingunni til að koma höggi á Jón Bjarnason.


mbl.is Bann gangi gegn ákvæðum EES-samningsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband