Falsfréttir

Sjaldan hefur dunið yfir þjóðina meira magn falsfrétta en nú. Þar eru svokallaðar "alvöru" fréttastofur einna duglegastar. 

Í fréttatíma sýn í gærkvöldi flutti Kristján Már eina slíka, um vindorkuver á Garpsfjalli. Fréttin var ein stór falsfrétt og hefði verið auðvelt fyrir fréttamann að sannreyna það. Það er nú ekki eins og vindorkuver séu einhver nýmæli í heiminum, þó þau séu almenning hér á landi kannski framandi. En fréttamaður valdi frekar að flytja áróður en sanna frétt. Meðvitað eða ómeðvitað.

Eitt meginatriði þessarar fréttar var ásýnd þessa vindorkuvers og sýndar tölvumyndir úr fórum framkvæmdaraðila í því skyni. Eins og allt annað sem frá vindbarónum kemur er þetta áróður, í engum tengslum við sannleikann, rétt eins og "loforð" þeirra um tiltekinn fjölda starfa og tekna fyrir nærsamfélagið. Það er auðvelt að spinna slíkan spuna fyrir fátæk sveitarfélög, sem berjast í bökkum og taka fagnandi hverri dúsu sem til fellur. En fréttamenn sem vilja láta taka sig alvarlega, sannreyna gildi fréttarinnar. 

En aftur að ásýnd orkuversins. Þar er falsið slíkt að hvert mannsbarn sem vill sjá ruglið, gerir það. Þarf ekki annað en að skoða hæð fjallanna og bera saman við áætlaða hæð hverrar vindtúrbínu. Það atriði eitt hefði átt að vekja spurningar hjá fréttamanni. Það er engin leynd yfir þessum upplýsingum, hægt að finna hæð hæstu tinda á flestum kortum og í skipulagslýsingu um vindorkuverið kemur fram áætluð hæð hverrar túrbínu. 

En fréttamenn velja ætíð auðveldari kostinn, að láta mata sig af hagsmunaaðilum og kannski þeim sem launa best. Því er þessar stofnanir ekki lengur marktækar. Eru falsfréttastofur.

 

Náttúrunni verður ekki bjargað með því að fórna henni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Á sama tíma er enginn að velta því fyrir sér að það gæti verið betri leið til að virkja vindinn að bora (vind)göng í gegnum fjöllin og koma túrbínum fyrir í þeim.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.7.2025 kl. 00:58

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

 Það er hárrétt hjá þér Guðmundur, þessi tækni er byggð á gamalli og úreltri tækni. Margir hafa reynt að koma fram með nýjar hugmyndir, en þær drepnar niður af þeim stóru í iðnaðnum. 

Ekki mörg ár síðan íslenskir drengir komu fram með snilldarhugmynd til virkjunar vindsins. En þar hefur hvorki gengið né rekið. Þeim ekki leift að þróa sig yfir í alvöru flokk raforkuframleiðslu. Verða að láta sér duga einstaklingsmarkaðurinn, sumarbústaðir og þann flokk.

Smá leit á netinu gefur manni innsýn í margar slíkar hugmyndir, hugmyndir sem byggðar eru á hugviti í stað gamallar úreltrar tækni. Þessum hugmyndum er haldið niðri, ekki leift að þróa þær frekar.

Gunnar Heiðarsson, 27.7.2025 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband