Þjófnaður varðar við lög

Að sækja fé í vasa annarra kallast þjófnaður. Lífeyrissjóðir launafólks er í eigu þess, ekki ríkisins. Um það þarf vart að deila. 

Kjör aldraðra og öryrkja eru skammarleg hér á landi. Einn flokkur umfram aðra hefur haldið uppi málflutningi þessara hópa. Sá flokkur kennir sig við fólkið í landinu og situr nú í ríkisstjórn. Aldrei nefndu frambjóðendur þess flokks að meiningin væri að fara ránshendi á hendur annars þessara hópa, til að bæta hag hins. 

Lífeyrisréttindi launafólks eru heilög og má ekki skerða. Þau veita fólki rétt í samræmi við vinnu og launakjör á starfsævi hvers sjóðsfélaga. Þegar þetta kerfi var stofnað, var skýrt haldið fram að sjóðsgreiðslur ættu ekki að skerða aðrar greiðslur frá ríkinu. Þessir sjóðir áttu að vera viðbót. Því miður hefur ekki verið staðið við það að hálfu ríkisins.

Nú ber hins vegar annað við. Ríkið telur sig geta gengið í þessa sjóði til að fjármagna hálft kosningaloforð eins stjórnarflokkanna. Ætlar að ræna launafólkið lögmæddri eign þess. Þetta er algerlega ný aðferðafræði og mun auðvitað, ef af verður, verða lagt fyrir dómstóla.

Þjófnaður varðar við lög.


mbl.is Örorkulífeyrir bitni ekki á ellilífeyrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er ég kominn á ellilífeyri og fæ 60000 krónur eftir skatt frá lífeyrissjóðnum þrátt fyrir að vera búinn að borga í hann alla tíð vegna þess að ég tók þá ákvörðun að taka hann út um sextugt. Myndirðu ekki vera sammála mér að lífeyrissjóðurinn hafi verið að ræna mig alla tíð.

jósef Ásmundsson (IP-tala skráð) 10.6.2025 kl. 12:15

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Lífeyrissjóðakerfið er fjarri því að vera fullkomið, Jósef. Þar þarf margt að laga, jafnvel kollvarpa þessu kerfi.

Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að launþegar eiga innistæður sjóðanna og ríkinu ekki heimilt að ganga á þær.

Gunnar Heiðarsson, 11.6.2025 kl. 06:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband