Flotræfilsháttur utanríkisráðherra

Meðan við getum ekki haldið uppi grunnþjónustu við landsmenn, meðan innviðir grotna niður, er tómt mál að tala um aukin útgjöld til hermála. Við getum lagt til aðstöðu fyrir vinaþjóðir okkar, en ekki peninga.

Þessi flottræfilsháttur utanríkisráðherra mun setja landið okkar á hausinn.

Það er haldnir blaðamannafundir og þjóðinni sagt að koma eigi hér böndum á fjármál ríkisins, að það eigi jafnframt að auka stuðning við þá sem minna mega sín, öryrkja og aldraða, að það eigi að efla heilbrigðisþjónustuna og menntakerfið, að það eigi að vinna á skuld ríkisins við innviðum af öllu tagi. Þetta á allt að gerast án aukinnar skattlagningu á landsmenn.

Svo fer utanríkisráðherra með himinskautum í tali um að við verðum að auka framlög til hernaðarmála! Ber okkur saman við milljónaþjóð sem býr á frímerki á meginlandi Evrópu, þar sem hægt er að ganga yfir í næstu lönd. Heldur hún að landmenn séu upp til hópa heimskir?

Það þarf nauðsynlega að fá skilgreiningu dómstóla á landráði, hvenær hægt er að ákæra fólk fyrir þá sök. Í mínum huga er það þegar ráðamenn ljúga að þjóð sinni, þegar ráðamenn taka hagsmuni erlendra ríkja fram yfir hagsmuni eigin lands og þegar ráðamenn vilja afsala ákvarðanavaldi þjóðarinnar til annarra ríkja eða ríkjabandalaga.

Valkyrjurnar virðast ætla að bera nafn með rentu, að þeirra verkefni verði að sækja þá dauðu á orrustuvöllinn. Að svo verði hert að þjóðinni að hún muni ekki lifa það af!

 

 


mbl.is Þrýstingur á Ísland í óformlegum samtölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Svo rétt og satt Gunnar.

En rétta nafnið í dag á þær eru

forynjur. Vilja Íslandi allt illt.

Sigurður Kristján Hjaltested, 4.4.2025 kl. 21:36

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Satt og rétt.

Ég held að það sem okkur vantar mest, er staðfastur leiðtogi sem fer fyrir okkur öllum, því við erum nefnilega meirihluti þjóðarinnar, ef að er gáð.

Eins og staðan er í dag, þá virðast þeir Arnar Þór, Ástþór og Guðmundur Franklín, með þau skötuhjúin Pétur og Arnþrúði á Útvarpi Sögu sér að baki vera einustu einstaklingarnir hér á landinu, sem þora að segja fullum hálsi - Það sem við hin hugsum en þorum helst ekki að segja upphátt.

Því miður virðist Miðflokkurinn ónýtur og lítið betri en hin elítan, en ég skal vera tilbúinn þegar kallið kemur!

Jónatan Karlsson, 5.4.2025 kl. 10:36

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það sem mér finnst merkilegast er að þessi manneskja virðist ætla að komast upp með hvað sem er, hér kemur STUTT upptalning; Talað er um að hún hafi sett MIKINN þrýsting á Geir Haarde þess efnis að "lána" Kaupþingi banka varagjaldeyrissjóð landsmanna (en maðurinn hennar var einn af "toppunum" innan bankans), allir vita nú hvað varð um varagjaldeyrissjóð þjóðarinnar,  ekki má nú gleyma KÚLULÁNINU  fræga, hún og fyrrverandi Utanríkisráðherra hafa verið staðnar  að ósannindum vegna lokunar sendiráðsins í Moskvu, hún fór til Brüssel og e "ENDURVAKTI" ESB umsóknina frá 2009 án heimildar frá Alþingi eða samráðs  við Utanríkismálanefnd og svona mætti lengi telja.  Svo er sagt að HÚN HAFI LAGT HARÐAST AÐ Ásthildi Lóu Þórsdóttur að segja af sér vegna 35 ára gamals máls, sem var ekki nokkur hlutur saknæmt við.  NEI ÞAÐ ER SKO ÖRUGGLEGA EKKI SAMA HVER Á Í HLUT.......

Jóhann Elíasson, 5.4.2025 kl. 12:15

4 identicon

Sælir piltar; æfinlega !

Afbragðs frásaga; ömurlegra stjórnarhátta, Gunnar frændi.

Sigurður Kristján - Jónatan og Jóhann Stýrimaður.

Litlu; eða mjög takmörkuðu að bæta, við ykkar gagnyrtu ábendingar.

Nema; það sje markmið FORYNJANNNA, að búa í haginn fyrir það hyski, sem fór frá völdum í Desember s.l. - og það eigi greiða leið þess til baka: jafnvel ?

Hjer; vantar tilfinnanlega III. aflið, sem lætur RAUNVERULEGA hagsmuni landsmanna ganga fyrir - ekki: einhvern fáránlegan slettirekuskap víðs vegar í útlöndum, m.a.

Með beztu kveðjum; sem endranær, af Suðurlandi /

e.s. Hvern andskotann; eru þau í Miðflokknum að hugsa, annarrs ?

Eru vitsmunirnir þar innanbúðar ekki meiri; en Marglyttunnar, til sjávarins ? ? ?

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.4.2025 kl. 12:41

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég var hér nánast fram á nótt að velta fyrir mér hvenær/hvernig fremja menn landráð? Það þurkaðist út fyrir mistök. Þið eruð aldeilis frábærir,en það voru Miðflokksmenn og pirruðu Steingrím VG.aðeins þrír  í umræðum bókun (35)? um ´´árið.  

Helga Kristjánsdóttir, 5.4.2025 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband