Vanhæfni í rekstri olíufélaga?
11.4.2023 | 07:48
Grátklökkur forstjóri eins af olíufélögum þessa lands mætti í viðtal á sjónvarpsrás rúv í gærkvöldi. Taldi hann illa vegið að olíufélögunum hér, sér í lagi af hálfu framkvæmdastjóra FÍB.
Forstjórinn sagði að hér á landi væri einungis notað hreint eldsneyti og að skattar væru háir. Því væri alls ekki hægt að bera saman eldsneytisverð hér á landi við verð á eldsneyti erlendis. Við þessa er ýmislegt að athuga.
Erlendis er eingöngu hreinsað eldsneyti selt af dælum, enda fáir bílar, ef einhverjir, búnir getu til að aka á óhreinsuðu eldsneyti. Því er sá samanburður vel hæfur. Um skatta er það að segja að t.d. í Danmörku, en verð eldsneytis þar var grunnur að fréttatilkynningu FÍB, eru skattar sambærilegir við það sem hér er. Því er sá samanburður einnig vel hæfur.
Þó keyrði um þverbak þegar forstjórinn var þráspurður um fákeppni olíufélaganna. Það taldi hann fráleitt, enda fjögur olíufélög í landinu og fimmti eldneytissalinn að auki. Samt sagði hann að öll þessi olíufélög sem sæju um innflutninginn, versluðu við sama birgja erlendis. Hver er þá samkeppnin?
Þá er spurning hvað breyttist við covidið. Var olían eitthvað minna hreinsuð fyrir það? Skattar hafa vissulega hækkað, rétt eins og í Danaveldi og samkeppnisstaðan hér er söm. Þó er álagningin nú margfalt meiri en hún var fyrir covid.
Eftir stendur að hagnaður olíufélagana hér hafa dregist saman um helming, að sögn forstjórans. Ef svo er, þegar séð er svo ekki verður um villst að álagning þeirra hefur aukist til muna, er ekki nema eitt í stöðunni.
Íslensku olíufélögin eru rekin af vanhæfu fólki!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bílar og akstur, Samgöngur | Facebook
Athugasemdir
Sammála niðurstöðu þinni. Með vöru með slíku fjármagnsflæði er óskiljanlegt að hagnaður minnki. Þrátt fyrir háa skatta þá eru þeir settir beint á verð vörunnar svo varla er það þáttur hjá eigendum.
Hægt er að horfa á þetta þannig að fjármagnskostnaður sé of hár og hitt að of mikið er tekið úr félaginu sem leiðir til fyrri hluta að taka þarf óþarfa lán til að halda rekstrinum gangandi.
Vanhæfnin blasir við.
Rúnar Már Bragason, 11.4.2023 kl. 10:44
Sæll Rúnar.
Nærtækari skýring er kannski frekar sú að olíufélögin eru komin á kaf í verðbréfa- og fasteignabrask. Vafasamir menn farnir að nota þau sem skálkaskjól við sömu iðju og þeir stunduðu á árunum fyrir hrun.
Kveðja
Gunnar Heiðarsson, 11.4.2023 kl. 11:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.