Tap á tap ofan
26.8.2022 | 23:39
Fargjaldatekjur og rekstrargjöld haldast í hendur en þó er sögulegt tap á rekstrinum. Hvað veldur?
Rekstur Strætó hefur verið rekinn með tapi frá því ég man eftir, mismiklu en nú hefur verið sett nýtt met. -600 milljónir í kassanum. Þetta þýðir að á hvern íbúa höfuðborgarsvæðisins, sem nýtir sér þjónustu Strætó, vantar 62.500 krónur í kassann!
Svo ætla eigendur Strætó að koma á einhverri borgarlínu, telja að það muni fjölga farþegum úr um 4% í 12%. Þetta er galið. Meðan ekki er hægt að reka núverandi þjónustu fyrir ofan núllið er tómt mál að tala um að kasta tugum eða hundruðum milljarða króna í það eitt að efla vandann!
Strætó tapaði 600 milljónum á hálfu ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Samgöngur, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.