Grinch og gleðileg jól
24.12.2020 | 23:54
Sagan af Grinch, eða Trölla eins og við köllum hann, fjallar um fígúru sem reynir að stela jólunum af fólki í ótilteknum smábæ, einhversstaðar í ævintýralandi. Honum verður ekki kápan úr því klæðinu, enda jólin stærri og meiri hátíð en svo að hægt sé að stela henni.
Einn ráðherra í ríkisstjórn okkar gerði tilraun til að feta í þessi fótspor Grinch, en vonandi verður afrakstur hans ekki betri, jafnvel þó sterkur svipur sé með þeim.
Gleðileg jól til allra bloggvina og annarra sem lesa það pár sem á þessari síðu má finna.
Hefði átt að yfirgefa listasafnið strax | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Trúmál | Facebook
Athugasemdir
Takk sömuleiðis Gunnar, gleðileg jól.
Með kveðju að austan.
Ómar Geirsson, 25.12.2020 kl. 00:50
Gleðileg jól.
Guðmundur Ásgeirsson, 25.12.2020 kl. 17:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.