Ráðherra niðurlægir kjósendur!

Eitt af stóru kosningaloforðum Framsóknar fyrir kosningarnar haustið 2017, var að vegagjöld yrðu aldrei tekin upp kæmist flokkurinn til valda. Formaður flokksins (SIJ) var duglegur að halda þessu kosningaloforði á lofti og koma vart fram í fjölmiðlum eða fram á fundum án þess að nefna einmitt þetta kosningaloforð.

Í fyrstu tveim viðtölum við fjölmiðla, eftir að hafa tekið við stól samgönguráðherra, ítrekaði SIJ enn og aftur þetta atriði. Síðan komu áramót, með sinni gleði og glaum. Eitthvað hefur ruglast í kolli ráðherrans í þeim gleðskap, því í fyrsta viðtali hans við fjölmiðla á árinu 2018, innan við viku frá því síðasta, var komið annað hljóð í kallinn. Nú voru veggjöld allt í einu orðin hans hugðarefni og hafa verið síðan.

Í þeirri frétt sem þessi pistil er hengdur við, er í fyrsta skipti sem fréttamaður nefnir þessar staðreyndir við ráðherrann og hann krafinn skýringa. Svar ráðherrans er vægast sagt undarlegt. Annað hvort er hann að hæðast að kjósendum og niðurlægja þá, nú eða eitthvað stórkostlegt er að í kolli ráðherrans!

Nú heldur hann því fram að hann hafi aldrei verið á móti veggjöldum, bara á móti tollahliðum. Hann nefnir sem dæmi að aðferðarfræðin við Hvalfjarðargöng þóknist honum! Er minni ráðherrans svo skert að hann man ekki að hann sjálfur var síðasti maður Íslands til að greiða toll í tollskýli Hvalfjarðargangna!! Íslenskir stjórnmálamenn hafa verið krafðir um geðrannsókn fyrir minna rugl!

Það er nú svo að nú þegar eru flest verk í vegagerð unnin af verktökum og því engin stefnubreyting þar á hjá ráðherra. Hitt má vel hugsa sér að verktakar taki einnig yfir hönnun og fjármögnun verkefna. Þá á einfaldlega að semja við þá verktaka um ákveðna greiðslu á ári hverju af vegafé. Veggjöld eiga ekkert að þurfa að koma til.

Hitt má svo aftur skoða að taka upp einhverskonar aðra aðferð við fjármögnun vegaframkvæmda en nú er. Það hlýtur þá að skoðast í því ljósi að núverandi aðferð leggist þá niður fyrir einhverja aðra. Tvísköttun á ekki og má ekki koma til greina, aldrei!!

Það er ljótt að hæðast að fólki, enn verra þegar ráðherrar telja sig þess umkomna að gera slíkt við sína kjósendur. Þingmenn og ekki síst ráðherrar eru starfsfólk kjósenda, ekki öfugt!!


mbl.is Aðkoma einkaaðila flýti framkvæmdum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flökt og fláttskapur Sigurðar Inga kemur æ betur í ljós.  Ekki nema von að fylgið við Framsóknarflokkinn sé, skv. skoðanakönnunum, hratt fallandi.  Það líður að kosningum miklu fyrr en síðar.  Samúð kjósenda með Framsóknarflokki Sigurðar Imga verður lítil sem engin.  Vegamál hafa ætíð skipt landsbyggðaríbúa mjög miklu máli og þeir munu ekki fagna þessum fláttskap og lítt duldu einkavæðingartilburðum Sigurðar Inga.  Félags- og samvinnustefnan er greinilega komin á höggstokkinn í vegamálum hjá honum.  Frjálshyggjustefna fyrrum forstjóra ÍsAm í eigu kvótadrottningarinnar í Eyjum, sem Sigurður Ingi skipaði vegamálastjóra er greinilega sú stefna sem hann fylgir núna.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.11.2018 kl. 19:32

2 identicon

Það var engin tilviljun að Sigurður Ingi skipaði fyrrverandi forstjóra ÍsAm sem Vegamálastjóra.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.11.2018 kl. 19:39

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Símon

Oft hafa stjórnmálamenn skipt um skoðun og gjarna eftir kosningar.

Einn varð svo frægur að snúast 360 gráður í ræðustól Alþingis, en það kom ekki að sök, þar sem hann endaði jú í sömu sporum. Sennilega hefði það ekki þótt merkilegt, nema fyrir það að hann tók upp á þeirri ósvinnu að afsaka sig og sakaði rauðvínið sem þingmönnum var boðið upp á í matsal Alþingis, um.

Ein áramótagleði dugði til að Sigurður Ingi snerist, þó einungis hálfhring. Líklega mun hann klára hringinn þegar næstu kosningar nálgast og tala þá gegn vegskatti.

Það var vissulega nokkuð undarlegt þegar dýralæknir var ráðinn vegamálastjóri og víst að það á eftir að kæta lund sagnfræðinga framtíðar. Ekki er víst að menn kætist jafn mikið yfir dýralækninum sem sat stól fjármálaráðherra í hrunstjórninni og nokkuð víst að hrollur mun fara um menn þegar þeir, í framtíðinni, hugsa til þess dýralæknis sem nú vermir stól ráðuneytis vegamála.

Gunnar Heiðarsson, 7.11.2018 kl. 21:38

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Bara svo það valdi nú ekki misskilningi, þá hef ég ekkert á móti dýralæknum. Tel þá flesta vera vel hæfa í sínu starfi og sumir frábærir. En þar eiga þeir líka heima.

Gunnar Heiðarsson, 7.11.2018 kl. 21:41

5 identicon

Dýralæknir og séra Dýralæknir er sitthvað.  Dýralæknar eru almennt ágætir til síns brúks.

Það sem ég var að benda á, er að sú sem Sogurður Ingi skipaði vegamálastjóra var forstjóri ÍsAm í eigu kvótadrottninguna í Eyjum, og við vitum alveg hvernig tengsl hennar og háttsettra Sjálfstæðisflokksmanna eru.  Ég var að meina að nú sé komið að helmingaskiptingu B og D af gróðanum af einkavæðingu í vegaframkvæmdum og rekstri.  Það gerðist t.d. þegar bankarnir voru einkavinavæddir á tíma Davíðs og Halldórs sem endaði svo með kerfislægu hruni haustið 2008.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.11.2018 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband