Ótrúleg fréttamennska
20.2.2015 | 23:32
Hvað gengur fréttamanni til að birta svona andsk... rugl frétt! Halda mætti að þessi maður hafi aldrei farið út úr húsi og aldrei litið í tölvu.
Allt frá því byrjað var að framleiða svokallaða PickUpp bíla í Bandaríkjunum hefur verið hægt að fá á þá snjótennur. Skiptir þar engu um stærð þessara bíla eða hvort þeir eru með drifi á öllum hjólum eða bara afturdrifnir. Sama má segja um svokallaða SVU bíla, allt frá gamla Jeep bílnum til dagsins í dag.
En fréttamaður þarf þó ekki að líta yfir hafið til að sjá þessa "nýjung", þar sem vegagerðin hér á landi hefur um all langt skeið verið með suma af sínum PickUp bílum með snjótönn. Þó er sjaldnast þar um að ræða stóra ameríska PickUp bíla, heldur litla og hálf aumingjalega japanska bíla af þeirri gerð. Jafnvel Þýski WV PickUp iðnaðarmanna bíllinn hefur sést með slíka snjótönn, á vegum vegagerðarinnar.
Og svona til að fréttamaður átti sig örlítið á ruglinu í sér, um að ekki hafi verið hægt fá snjótennur nema með þungum og stórum pallbílum, eru hér nokkrar myndir:
Einhvern veginn svona byrjaði þetta, snemma á síðustu öld. Strax og bílar fóru að þekkjast sáu menn að ekki dugði lengur að valta snjóinn með stórum völtum, dregnum af hestum. Bílarnir gátu ekki ekið eftir slíkum troðningum. Ekki er ljóst hvaða bíltegund þetta er, gæti allt eins verið Ford.
Hér er Japanskur mini pickup með snjótönn. Þessir bílar voru ekki algengir hér á landi, en þekkjast nokkuð innan Evrópu og Bandaríkjanna. Í Japan eru svona smá pallbílar afar vinsælir.
Nissan King Cab, árg 1985 - 1997. Þessir bílar voru nokkuð algengir hér á landi, þó kannski ekki með snjótönn.
Willys, sennilega árg 1966 eða þar nærri. Er með amerísku Meyerhúsi og snjótönn. Ameríkanar voru gjarnan með snjótennur á þessum bílum, enda litu menn svo á að þetta væri fyrst og fremst vinnutæki.
Gamli góði Scout jeppinn. Þessir bílar voru framleiddir frá 1961 til 1980. Þeir voru algengir hér allt fram undir lok áttunda áratugar síðustu aldar.
Land Rover þekkja allir. Bretar hafa notað þessa bíla með snjótönn allt frá því komu fyrst á markað. Merkilegt að ekki skuli hafa verið flutt hingað inn snjótennur fyrir þessa bíla, svo arfa lélegir sem þeir voru í snjó. Sátu fastur ef skafl sást framundan.
Kannski ekki algeng sjón, en sönnun þess að ekki þarf "stóra og þunga pallbíla" til að hreinsa snjó. Reyndar var Sportinn svo góður í snjó að þörf fyrir snjótönn á hann var frekar lítil.
Ford F150, samskonar bíll og fréttamaður segir að séu nú fyrst að koma með á markað snjótönn. Þessi er framleiddur á árunum 1992 - 1997.
Mjög algeng sjón í Bandaríkjunum og þekkist einnig hér á landi. Þarna fer ekki "stór og þungur pallbíll" heldur fjórhjól. Það er merkilegt hversu dugleg þau eru í snjómokstri. Hægt er að fá á þessi hjól heila tönn með skekkibúnaði, eins og á myndinni, en einnig fjölplóg, eins og svo algengir eru hér á landi.
Þessi mynd er að öllum líkindum af rússneska IMZ Ural hjólinu, með hliðarsæti. Ekki er víst um afköst svona tækis við snjóruðning. Þó veit maður ekki.
Að lokum kemur svo hérna mynd af snjóplóg umhverfissinnans.
Það fer alltaf jafn mikið í taugarnar á mér þegar fréttamenn láta frá sér fréttir um efni sem þeir ekki þekkja og nenna ekki að afla sér upplýsinga um. Það eru nú orðin þó nokkur blogg hjá mér þar sem ég læt þessari gremju minni lausan tauminn. Það merkilega er að flest þessara blogga snúa að fréttum undir liðnum "Bílar" á vef mbl.is. Ekki veit ég þó hvort um sama fréttamann er að ræða í öll skiptin, þar sem sjaldnast kemur fram hver skrifar fréttirnar.
Lausnin á snjóhreinsun fundin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég er nánast hættur að lesa bíladálk Moggans, það liggur við að önnur hver "frétt" sé svona þvæla. Ámeríkanar hafa verið með snjótennur á alskonar bílum í marga áratugi, t.d. man ég eftir bæklingi sem ég átti einu sinni um Jeep CJ5 frá því fyrir 1980 þar sem snjótönn var í boði sem aukabúnaður.
Mig minnir að Vegagerðin hafi verið með Toyota Hilux með snjótönn í mörg ár.
Einar Steinsson, 21.2.2015 kl. 18:23
Það er rétt Einar, Vegagerðin hefur verið með snjótennur á Hilux, L200 og Nissan bílum um langt skeið. Auk þess er slíkur búnaður á sumum WV pickup bílum Vegagerðarinnar.
Gunnar Heiðarsson, 21.2.2015 kl. 23:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.