Erlendar fréttastofur flytja þær fréttir sem þeim eru færðar

Ekki man ég nákvæmlega hvenær Árni Páll hætti með þennan frasa um að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hefðu ekkert umboð frá þjóðinni, en lengi fram eftir nóttu hélt hann þessu fram, jafnvel eftir að ljóst var að þessir flokkar fengju yfir 50% atkvæða. En það skiptir ekki megin máli, hann lét þessi orð falla og þau eru því eftir honum höfð.

Þegar erlendir fréttamiðlar leita sér frétta hér á landi eru þeir sjaldnast með hóp fréttamanna hér á landi og útilokað fyrir þá að setja sig inní málin af einhverju viti. Því leita þeir til annara fréttastofnanna sem eru hér á landi og leita til valdra álitsgjafa. Þá kemur auðvitað fréttastofa ríkissins fyrst til greina, enda á hún að vera hlutlaus og frá henni fá þeir ábendingar um hverjir álitsgjafar séu bestir. Út frá þessum upplýsingum senda þeir síðan sínar fréttir til heimalands síns.

En þarna er eitt sem skekkir myndina og er kannski skýring þeirra undrafrétta sem okkur hafa borist frá erlendum fréttamiðlum. Fréttastofa ríkissins er enn í bullandi kosningabaráttu, er ekki enn búin að sætta sig við að hún tapaði í þessum kosningum.

Því eru fréttir í erlendum fréttamiðlum litaðar þessu, þær enduróma pólitíska skoðun fréttastofu RUV og álitsgjafarnir sem leitað er til eru sömu pólitísku kennararnir og fréttastofa RUV leitar til. Ekki hafa erlendar fréttastofur verið að gera víðreysnt um landið og tala við kjósendur. Ekki hafa erlendar fréttastofur verið að kynna sér þann vanda sem þjóðin hefur þurft að búa við. Ekki hefa erlendar fréttastofur reynt að leita frétta á því hvers vegna þjóðin gaf ríkisstjórninni reisupassann.

Það er allt sem frá fréttastofu RUV og sérlegum ráðgjöfum hennar tekið sem heilögum sannleik og síðan hneykslast á þjóðinni. Ef allt væri svo gott hér á landi sem erlendar fréttastofur halda fram, væri ljóst að kosningarnar hefðu farið á annan veg.

En þáttur fréttastofu RUV er meiri en það eitt að mata erlendar fréttastofur af sínum pólitíska áróðri. Í speglinum í gærkvöldi náði fréttamaður RUV í Lundúnum sér upp á nýtt og áður óþekkt plan í ruglinu og áróðrinum. Auðvitað bar hún erlendar frétastofur fyrir sig í sínum málflutningi, en hversu mikið af þeim "sannleik" sem þessar erlendu fréttastofur fluttu, skildu hafa komið einmitt frá þessum sama fréttamanni RUV, í þeirra hendur.

Það var sorglegt að horfa uppá hvernig fréttastofa RUV hagaði sér í kosningabaráttunni, enn sorglegra er að horfa uppá að starfsmenn þessarar stofnunar skuli ekki geta sætt sig við lýðræðislega niðurstöðu þjóðarinnar.

Árni Páll og reyndar allir þeir sem létu einhver orð falla gegn þeim tveim flokkum sem þjóðin treystir best, mega því búast að heyra fréttir frá erlendum fjölmiðlum, þar sem vitnað verður í þeirra orð. Hvort þau ummæli verða í einhverju samhengi við raunveruleikann mun ráðast af fréttastofu RUV og meðan starfsmenn þeirrar stofnunar sætta sig ekki við vilja þjóðarinnar, má búast við ýmsu.

 


mbl.is Kannast ekki við viðtal við BBC
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband