Ömurlegt þjóðfélag
13.4.2012 | 14:15
Fyrir hvað er þetta mál svo merkilegt? Þetta er bara ósköp venjulegt plastmál, þó hugsun þeirra Andra og Gunnu að baki uppboðsins hafi verið góð.
En hugsanlega gæti þetta þó orðið sögulegt plastmál, hugsanlega er þetta síðasta plastmálið sem Jóhanna ber að lituðum vörum sínum í Ríkisútvarpinu, sem forsætisráðherra.
Hugsanlega voru þeir sem buðu í "dýrgripinn" framsýnir og vita að hann verði einhvers virði fyrir framtíðina. Að í framtíðinni megi nota hann sem minningu um versta forsætisráðherra sögunnar. Hugsanlega verður þessi "dýrgripur" sýndur skólabörnum landsins, í framtíðinni, svo þau geti minnst þeirra hörmunga sem ríkisstjórn þeirrar persónu sem af honum bergði, leiddi yfir land og þjóð!
Og hugsanlega verður þessi "dýrgripur" minnisvarði um það er síðasta vígi sjálfstæðis þjóðarinnar féll!!
Hagur Umhyggju hefur þó örlítið vænkast og er það gott. Það er þó frekar ömurlegt þjóðfélag sem þarf að bjóða upp drykkjarmál ráðamanna, svo peningar fáist fyrir þá sem minnst mega sín!!
Mál Jóhönnu slegið hæstbjóðanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er Sjónlistamiðstöðin að kaupa þennan viðbjóð fyrir almannafé?
Gunnar Th. Gunnarsson, 13.4.2012 kl. 14:22
Bauð Valhallargengið ekki í listaverkið,skömm.
Aðalbjörn Steingrímsson (IP-tala skráð) 13.4.2012 kl. 14:26
fylgir kannski slef úr Jóhönnu með??
sigurður örn brynjólfsson (IP-tala skráð) 13.4.2012 kl. 14:42
Shit!!!
Vonandi ekki :o)
Geir (IP-tala skráð) 13.4.2012 kl. 15:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.