Enn eitt klúðrið

Enn eitt klúður ríkisstjórnarinnar virðist vera í uppsiglingu, eða ætlar Framsókn að bjarga henni í þetta sinn?

Það er sama hvað þessi blessaða ríkisstjórn gerir, allt snýst í höndum þeira. Ef ekki væri fyrir eindæma dugleysi stjórnarandstöðunnar, væri þessi stjórn löngu fallin!

Við hvert klúðrið sem stjórnin kemur fram með, er henni alltaf bjargað af stjórnarandstöðunni! Aumingjaskapur flestra þingmanna er alger, sama í hvaða flokki þeir eru!!

 


mbl.is Lilja vill uppkosningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þetta er dapurleg staðreynd. "Fjórflokkurinn" vill ekki kosningar vitandi að "hann" mun nánast þurrkast út.

Sigurður I B Guðmundsson, 27.2.2011 kl. 01:08

2 identicon

Stærsta klúður þjóðarinnar var að kjósa of marga lýðskrumara á þing. 

Lílja Mós þessi er einn þeirra og fréttamönnum finnst gaman þegar einhver tilbúinn að klóra í samherjana. 

Það er ekki hægt að ásaka ríkisstjórnina um hegðun Lilju heldur fjölmiðla sem fullnægja athyglissýki hennar.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 27.2.2011 kl. 01:53

3 identicon

Þess konar einstaklingar sem finnst þetta eðlileg tilhögun eru ekkim eðlileg afurð síns samfélags, heldur í grunninn alræðissinnar, sem liði betur í Íran þar sem forynginn gæti ákveðið allt út og suður fyrir þau, og klerkar ávítað þau fyrir brot á reglum og lögum, og þar liði þeim vel, innan ramma sem aðrir sköpuðu fyrir þau.

Engin þjóð með sjálfsvirðingu breytir eigin stjórnarskrá fyrir tilstilli ólöglega kjörinna einstaklinga, í svo háðuglegum kosningum.

Engin þjóð er meiri en sjálfsvirðing hennar. Sýnum okkur sjálfum þá virðingu að kjósa okkar eigin leiðtoga til að breyta okkar eigin stjórnarskrá, í átt til batnaðar, en ekki sem skálkaskjól fyrir andlýðræðislegar tilhneigingar ríkisstjórnarinnar.

Þetta er ólöglega kjörið þing sem naut einungis stuðnings lítils hluta þjóðarinnar jafnvel samkvæmt niðurstöðu þessa ólöglega gjörnings. Það var illa staðið að þessu og hið mesta fúsk og eins og gert til þess að hæðast að Íslensku þjóðinni. Ríkisstjórn sem ekki virðir lög og rétt er ekki hæf til að stíra siðmenntuðu þjóðfélagi og á betur heima í ofríki ættbálkakerfis einhvers staðar í frumskóginum. Hér er siðmenning, og réttlætisgyðjan er blind, og á að vera blind. Hún sér hvorki hægri né vinstri, svarta né hvíta, karl né konu, því hún er réttlát.

Flokkshundum fullum ofríkis ráðlegg ég að gerast bara talibanar. Þið eruð til háðungar bæði fyrir hönd góðra og gildra hugsjónamanna sócíalismans eins og Trostky og Olaf Palme, og John Stuart Mill myndi ekkert vilja hafa saman að sælda með hægriflokkshundum Íslands heldur. Þið eruð samskonar pakk og kominn tími til að þið stofnið ykkar eigin flokk: Flokk ofstækismanna, en ofstækismaður er hver sá sem dæmir skoðun eftir hvaðan hún kemur, en ekki hver hún er, orð eftir eiganda þeirra, og réttmæti gjörnings, svo sem þessa stjórnlagaþings, eftir því hvar hann er flokksbundinn eða foreldrar hans. Nýja Ísland hefur ekkert pláss fyrir ofstækismenn og ofríki. Gerið okkur þann greiða að flytja til Saudi Arabíu, hægri sem vinstri! Réttlætisgyðjan hirðir ekki frekar um rautt eða blátt en svart eða hvítt og MEGI JUSTITIA RÍKJA Á ÍSLANDI...því HÚN EIN ER OKKAR FJALLKONA!!!

Með löghlýðinni kveðju,

Heiðvirður vinstrimaður.

Í nafni Justitia! (IP-tala skráð) 27.2.2011 kl. 02:55

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Vissulega er hægt að ásaka ríkisstjórnina um hegðun Liju Mósesdóttur, Jón Óskarsson!

Ef stjórnvöld væru að vinna eftir þeim loforðum sem þau gáfu kjósendum, svo þau kæmist til meirihluta á þing, þyrfti Lilja ekki að láta svona! Hún er einfaldlega að reyna að standa við sín loforð við kjósendu, annað en ræflarnir sem verma ráðherrastólana og hugsa það eitt að hjálpa fjármagnsfyrirtækjum á kostnað fjölskyldna landsins, það er að segja þegar þau eru ekki að undirliggja þær þjóðir sem vilja okkur feig!!

Það er merkilegt að stjórnarliðið skuli hafa einhvern hæfasta hagfræðing landsins, með sérþekkingu á kreppuástandi og viðbrögðum við því, innan sinna raða, en vilja ekki hlusta á ráð hennar. Þetta ber ekki merki um skynsemi hjá þessu fólki, frekar heimsku á háu stigi!!

Gunnar Heiðarsson, 27.2.2011 kl. 05:03

5 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Algjörlega sammála þér Gunnar. Þessi Ríkisstjórn er ekki að vinna fyrir okkur almenningin í Landinu...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 27.2.2011 kl. 08:11

6 identicon

ók kjósa og hvað á að kjósa úff.

gisli (IP-tala skráð) 27.2.2011 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband