Mjög alvarlegt ef satt er!!

Ef þessi frétt er rétt hafa stjórnvöld algjörlega fyrirgert rétti sínum til setu í stjórnarráðinu!!

Það er eiginlega ekki hægt að blogga neitt um þetta, málið er svo alvarlegt!!


mbl.is Vildu losa ríkið undan Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já ég er sammála þér Gunnar, þessi frétt gerir mann orðlausan, og ef rétt reynist þá er Ríkisstjórnin öll í þeirri stöðu að hún á að víkja tafarlaust...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 16.12.2010 kl. 09:09

2 Smámynd: Jóhann Hallgrímsson

Þetta getur bara ekki verið satt, af hverju ætti þýskur banki að lána lán vitandi að það fengist aldrei greitt að fullu.  það er eitthvað sem ekki er sagt frá hér...

Jóhann Hallgrímsson, 16.12.2010 kl. 09:52

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Því ríkari ástæða til að rannsaka málið, Jóhann.

Meðan þetta hangir í loftinu og sannleikurinn er ekki ljós, getur enginn þingmaður með smá snefil af sjálfsvirðingu, tekið afstöðu til þess lagafrumvarps er veitir fjármálaráðherra heimild til undirritunar icesave samningsins!!

Gunnar Heiðarsson, 16.12.2010 kl. 10:21

4 identicon

Uss ég er alveg hættur að taka mark á mbl, menn keppast þar um að hljóta náð hjá Dabba kóngi. Ég amk trúi ekki þessari frétt, það vita allir að Þjóðverjar fara vel með peninga og ef þeir hafa gert þennan "samning" þá hefur mikið breyst hjá þeim.

En það verður fróðlegt að sjá eftirmála af þessu "máli" ekki það að ég bíði í ofvæni eftir því.

Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 16.12.2010 kl. 12:04

5 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Eins og ég las fréttina þá ætluðu þeir að ganga frá lágmarks innistæðum og hirða síðan allar eignir landsbankans í staðin (viðurkenni að ég las hratt yfir svo getur vel verið að ég hafi misskilið), þeir hugsanlega sjá gróða í því að selja eignir gamla landsbankans hægt og rólega fyrir betra verð en skilanefndin hugsanlega gerir.

Halldór Björgvin Jóhannsson, 16.12.2010 kl. 13:47

6 identicon

Ástæður fyrir því að borga ekki Icesave:

- Aðalástæða fátæktar fátækustu ríkja heimsins er skuldafangelsi sem þessar þjóðir voru settar í , sem hefur komið í veg fyrir alla uppbyggingu, svo sem skólastarf, sjúkrahúsabyggingu og fleira. Ástandið á Haiti var til dæmis nærri jafn slæmt fyrir og eftir hamfarir, afþví að þeir skulda Frökkum svo mikinn pening að það er lítið hægt að gera við afgangspeninga annað en borga skuldir. Sama gildir um mörg Afríkuríki. Við ættum að hafa þetta í huga, þegar við sjáum næst baukinn frá Hjálparstofnun Kirkjunnar með grindhoraða sveltandi barninu á........að með því að borga Icesave er Ísland að leggja blessun sína yfir skuldaánauð þjóða sem concept. Þá munu reiknast á okkur mun hærri skuldir en Bretar og Hollendingar eru færir um að innheimta. Við erum ekki ein í heiminum og það er fylgst með okkur.....

2. Eins og þessi maður nefnir í greininni þá skapar þetta stórhættulegt fordæmi, sem gæti endað í hruni hins Vestræna heims eins og hann leggur sig. Bretar myndu brátt þurfa að súpa af eigin meðali, og með þeim síðan Bandaríkjamenn og fleiri. Efnahagskerfi heimsins gæti hrunið. Það eina sem kæmi í veg fyrir slíkt er vald þessara þjóða......en viljum við láta nýðast á okkur af þeim einum orsökum að við höfum lítið vald? Er það gott fyrir heiminn? Með sömu rökum og verið er að heimta skattfé af Íslendingum hefði verið hægt að gera það af flestum þjóðum.

3. Börnin okkar, barnabarnabörn og svo framvegis. Saklaus börn eiga ekki að gjalda fyrir afglöp 30 íslenskra bankamanna. Erfiðir tímar fara í hönd og við megum ekki við þessum aukabagga ofan á öllu þau stóru vandamál sem tilheyra framtíðinni. Þá einfaldlega munu börnin okkar ekki lifa af. Við getum þá kvatt þessa þjóð bless eftir sirka sjö kynslóðir. Það fara erfiðir tímar í hönd og börnin okkar munu þurfa að vera miklu sterkari, duglegri og betur á varðbergi en við sjálf.

Ástæður fyrir að borga Icesave

1. Blind hlýðni við "hinn sterka". "Stockholms syndrome." Geðveiki. Náði hámælum í tilvitnunum mannvitsbrekknanna sem héldu því fram á alþingi að okkur bæri "siðferðileg skylda" til að borga Icesave hið fyrra.

2. Ný-nazismi Updated Version. Að henga heilli þjóð fyrir mistök örfárra óvinsælla bankamanna. Þannig slær hjarta nazistans og þessar "röksemdafærslur" sendu gyðingana í gasklefana. Það er til geðsjúkdómur sem kallast "Stockholms syndrome". Íslendingar sem trúa því í raun og veru þeim beri að "refsa" fyrir syndir 30 bankamanna, eru líkir sjálfs-hatandi gyðingum af því tagi sem unnu innan veggja fangabúðanna við að urða lík samlanda sinna fyrir örlítið betra fæði og aðbúnað...það er að segja svipað og hinn efri-millistéttar alþingismaður býr við miðað við venjulegan íslenskan almenning. Meiri smámenni og smásálir er ekki hægt að hugsa sér. Við verðum að losna við geðveikt og órökrétt fólk af alþingi.

3. Heimsvaldastefna. Íslendingar hefðu getað hjálpað Afríkuþjóðum með að setja gott fordæmi að losna með tímanum undan sínum skuldaklafa, eins og átakið "Make Poverty History" hefur verið að berjast fyrir. Auðvitað finnst öllum það ekkert gott mál. Sumir aðhyllast enn Heimsvaldastefnu og trúa að best sé að litaði maðurinn sé enn undir hæl gömlu þrælahaldara sinna sem stálu flestum auðæfum hans. Kannski gamli Colonialisminn eigi svo sterka stuðningsmenn á Íslandi þeim finnist þeim bera "siðferðileg skylda" til að fara undir hælinn með Afríku, frekar en skapa mögulega hættu á lagalegu fordæmi, gömlu Heimsveldunum í óhag.

THE UNIVERSE (IP-tala skráð) 17.12.2010 kl. 02:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband