Eru ESB viðræður komnar í strand?
23.11.2010 | 21:10
Eru ESB viðræðurnar komnar í strand? Össur kominn á fulla ferð í fríverslunarsamning við Rússa og að auki farinn að berjast fyrir inngöngu Færeyinga inn í EFTA.
Varla er hann að ræða við Rússa ef meiningin er að ganga í ESB. Þá munu þessir samningar falla niður og vinnan því til einskis. Varla er hann að berjast fyrir Færeyjar um inngöngu í EFTA ef við erum að fara í ESB.
Það læðist að manni sá grunur að samningamenn ESB séu búnir að átta sig á ruglinu í Össur, að ESB áráttan hjá honum eigi engann stuðning hér á landi. Nema þeir séu búnir að fá nóg af því að standa í viðræðum við mann sem snýr útúr öllu sem við hann er sagt og snýr öllu á hvolf sem þeir láta frá sér. Kannsk að samninganefnd ESB hafi einfaldlega sagt honum til syndanna.
![]() |
Fríverslun rædd við Rússa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.