Hagfræði ????
8.4.2010 | 15:49
Það er greinilegt að ég er farinn að ryðga eitthvað í reikningi. Pálmi fær lán í banka til að greiða upp skuldbindingu í sama banka og það á að bæta tryggingastöðu bankans.
Fyrir það fyrsta hlýtur Pálmi að hafa fengið stærra lán hjá bankanum en hann var að greiða, segir að einn miljarður hafi verið notaður í annan banka.
Í öðru lagi vissu stjórnendur bankans að veðin fyrir láninu stóðust ekki og því engar líkur á að það fengist endurgreitt.
Hvernig í ósköpunum getur þetta bætt tryggingastöðu bankans?
Ég get ekki með neinu móti skilið þessa hagfræði.
Segir stefnu tilefnislausa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enda ertu ekki ríkur eins og Pálmi og félagar!
Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 8.4.2010 kl. 16:47
Þetta er ekki hagfræði heldur sturlunareinkenni.
Finnur Bárðarson, 8.4.2010 kl. 16:52
Ég tel mig töluvert ríkari en Pálmi og félagar þó ég hafi aldrei séð svona mikla peninga. Ég er með hreina samvisku. Það geta engir peningar komið í stað þess.
Gunnar Heiðarsson, 8.4.2010 kl. 16:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.