Svindlararnir
2.3.2010 | 15:50
Það að heil 5% þjóðarinnar skuli enn treysta bankakerfnu er kannski ekki svo undarlegt.
Ætli það sé ekki nálægt því hlutfalli sem mest græddi og svindlaði af okkur hinum, meðan græðgin tröllreið öllu.
Ætli það sé ekki nálægt því hlutfalli sem stæðstan þátt á í hruni fjármálakerfisins hjá okkur.
Ætli það séu ekki einnig nálægt því hlutfall þjóðarinnar sem hafa og eru að fá felld niður kúlulánin sín og aðrar stórskuldir.
Varla er í þessum hóp, það fólk sem bankarnir eru að mergsjúga.
Fáir treysta bankakerfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Passa þessi 5 % ekki við 5 prósentin hans Þráins Bertelssonar, sama fólkið sem þið talið um, þessir sem áttu stærstan hlut í hruninu og eru "fábjánarnir" hans Þráins. Spurningin er bara hvort þeir séu líka á listamannalaunum.
Sigurbjörg Kristmundsdóttir, 7.3.2010 kl. 12:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.