Að flækja fyrirsjáanleikann
16.9.2022 | 16:26
Umhverfis- orku og loftlagsráðherra (nokkuð dýr titill) telur að auka þurfi fyrirsjáanleik í kaupum á rafbílum. Fyrirsjáanleikinn var hins vegar nokkuð skýr, allt fram undir síðastliðið vor. Ívilnanir voru miðaðar við kaup á fyrstu 15.000 bílunum, en áttu síðan að leggjast af. Þetta vafðist ekki fyrir neinum og fyrirsjáanleikinn mjög skýr. En á vordögum ákvað ríkisstjórnin, eftir kröfum innflytjenda bílanna, að hækka þetta mark í 20.000 bíla. Þar með var fyrirsjáanleikinn horfinn út í veður og vind. Og enn ætlar ráðherrann með langa titilinn að auka á flækjustigið. Nú með hálfkveðnum vísum um nýjar ívilnanir til kaupa á rafbílum. Ekkert kemur þó fram í hverju þær ívilnanir liggja. Hann flækir bara fyrirsjáanleikann.
Við Íslendingar erum einstaklega nýjungagjarnt fólk. Þurfum alltaf að versla það nýjasta sem kemur á markaðinn. Því er næsta víst að jafnvel þó engar ívilnanir hefðu komið til og jafnvel þó eigendur rafbíla hefðu frá upphafi þurft að greiða sinn hluta til vegakerfisins, væri rafbílaeign lítið minni en hún er í dag. Það þurfti engar skattaívilnanir til að þjóðin færi á kostum þegar flatskjáir komu fyrst á markað. Snjallsímavæðingin hér á landi hefur tekist með ágætum þó engar skattaívilnanir komi til. Nú er hvert mannsbarn frá grunnskólaaldri með slík tæki í vasanum og flestir eru með dýrustu og nýjustu símana hverju sinni. Efnahagur skiptir þar litlu, snjallsíminn er látinn ganga fyrir öðrum nauðsynjum.
Megin ástæða þess að ekki eru fleiri rafbílar hér á landi er ekki skattaívilnanir. Ástæðan er að framleiðendur hafa ekki undan að framleiða rafbíla. Innflytjendur fá ekki nægt magn til landsins. Fleiri mánaða bið er eftir slíkum bílum hjá flestum umboðum. Þarna skipta skattaívilnanir minnstu máli.
Staðreyndin er sú að kaupendur rafbíla eru fyrst og fremst þeir er betur hafa það. Hástéttin og millistéttin. Hástéttin þarf ekki ívilnanir og millistéttin sem slíka bíla verslar, tekur bara hærra lán í bönkunum, enda þeir einstaklega viljugir til að lána til slíkra kaupa. Þeir sem minnst hafa milli handanna verða hins vegar að aka áfram á eldsneytisbílum. Það fólk hefur ekki efni á að nýta sér þessar skattaívilnanir. Hins vegar lendir á því fólki auknir skattar svo hægt sé að niðurgreiða bílana fyrir hástéttina!
![]() |
Boðar nýjar ívilnanir vegna rafbíla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er betra að vakna og pissa en...
16.9.2022 | 00:57
Það er betra að vakna og pissa en pissa og vakna. Stjórnmálamenn í Noregi eru nú vaknaðir við þá ónotatilfinningu að hafa migið undir, meðan þeir íslensku liggja enn í hlandi sínu.
Orkupakki 3 frá ESB, sem EES löndum var ætlað að samþykkja, fékk mikla gagnrýni. Lærðir menn með þekkingu á málinu, vöruðu eindregið þjóðþingin við að samþykkja þennan orkupakka, bentu á að sjálfræði þjóðanna yrði skert verulega varðandi orkumál. Nú hefur þetta sannast í Noregi, en enn erum við ótengd meginlandinu, þó sumir sjái þar einhverjar ofsýnir. Íslenskir stjórnmálamenn láta sig enn dreyma, liggjandi í hlandi sínu!
Vissulega er það svo að ríkin eiga enn sínar orkulindir og dreifikerfi. Noregur á m.a.s. strengina er tengja landið við meginland Evrópu. Það dugir þó ekki til, því Noregur ræður ekki lengur hvert né hversu mikla orku skuli selja. Þar er undirstofnun ESB, ACER með öll völd. Í þeirri orkukrísu sem skollin er á meginlandinu og menn vilja kenna við stríðið í Úkraínu, þó auðvitað hún stafi fyrt og fremst af rangri orkustefnu ESB, hefur sambandið nýtt þessa undirstofnun sína til að totta eins mikla orku frá Noregi og hugsast getur. Ástandið í Noregi er því orðið vægast sagt skelfilegt. Verð á orkunni hefur tífaldast og það sem skelfir þó meira er að Noregur er að fara inn í veturinn með hálf tóm miðlunarlónin. Það stefnir því í mikinn orkuskort er líður á veturinn og eina leiðin fyrir þá verður að kaupa orku af sveltandi orkumarkaði meginlandsins. Eitthvað mun sú orka kosta! Ekki víst að norski olíusjóðurinn dugi þá lengi til niðurgreiðslna á raforkunni.
Enn sleppum við hér á landi. Það eru þó vissulega blikur á lofti. Einkum er tvennt sem gæti breytt þessari stöðu okkar og orkuverð hér farið í hæstu hæðir. Fyrst er auðvitað að nefna sæstreng til meginlandsins, en enn eru menn að halda þeirri hugmynd uppi hér á landi. Afstaða ESB í því máli er skýr, enda slíkur sæstrengur inn í þeirra plönum og verið lengi.
Hitt atriðið er aðild Íslands að ESB. Síðast í dag voru nokkrir stjórnmálaflokkar að boða inngöngu í sambandið. Þeir fara auðvitað öðrum orðum að þeirri tillögu sinni, vilja "skoða samning" og velja svo. Það er eins og þetta fólk sé ekki með öllum mjalla. Það er ekki um neinn samning að ræða, einungis hversu hratt og vel okkur tekst að aðlaga okkur að lögum og reglum ESB. Þáverandi utanríkisráðherra var minntur rækilega á þetta á fréttamannafundi með Stefáni Fule, eins og sést í þessu myndbandi. Það eru engar undanþágur frá lögum og reglum ESB. Fyrir samþykkt Lissabonsamningsins var hægt að fá frest á aðlögun minniháttar mála, en þó einungis til skamms tíma. Eftir að hann tók gildi, í byrjun desember árið 2010, var slíkum frestum úthýst.
Viðræður um aðild eru því einungis um hversu vel gengur að aðlagast hverjum kafla þeirra og að lokinni aðlögun er viðkomandi kafla lokað með samþykki viðræðunefndar ESB. Eftir að aðlögun allra kafla er lokið og þeir samþykktir af sambandinu, fara þeir til samþykktar allra aðildarþjóðanna. Eftir samþykkt þeirra er umsóknarland hæft til aðildar í ESB, enda búið að aðlaga stjórnkerfið, lögin og reglurnar, að fullu að lögum og reglum ESB. Þessa aðferðarfæði er svo oft búið að segja að allir landsmenn ættu að þekkja hana. Það er ekki verið að semja um eitt né neitt, einungis að uppfylla kröfur sambandsins til aðildar.
Hitt liggur ljóst fyrir að ef landráðamönnum tekst það ætlunarverk að koma landinu undir stjórn ESB, þurfum við ekki lengur að spá neitt í orkumál hér á landi, né neitt annað. Þá mun hver einasta lækjarspræna verða virkjuð, allir hverir landsins beislaðir og vindmilluófreskjur reistar á hverjum hól! Og öll orkan flutt með sæstrengjum til meginlandsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)