Skuldir borgarbúa

Skuldir Reykjavíkurborgar eru komnar yfir 407 milljarða króna. Það segir að hvert mannsbarn í höfuðborginni skuldar um 3,3 milljónir króna, vegna óstjórnar borgarstjórnar. Það gerir um 13,2 milljónir króna á fjögurra manna fjölskyldu.

Það er gott að búa EKKI í Reykjavík.


mbl.is Segir rauðu ljósin loga hjá borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður þá eru hin sveitarfélögin tel ég að fylgja fast á eftir rvk þar sem búið er að setja línurnar... öll t.d. búin að skuldbinda sig í þetta borgarlínu bull.

Halldór (IP-tala skráð) 27.4.2022 kl. 09:41

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er svo sem rétt Halldór, en sennilega er lítill hluti skulda Reykjavíkur vegna þeirra áforma. Það er annar pakki og mun stærri.

Gunnar Heiðarsson, 27.4.2022 kl. 10:04

3 Smámynd: Hörður Halldórsson

....."Reykjavíkurborg – stórskuldug eða hvað? "... Grein eftir Þorvarð Hjaltason 22 mars  2022.í Kjarnanum. Hvet þig til að lesa þá  grein. Niðurstaða . staða borgarinnar er  betri en sumra nágrannabæja . 

Hörður Halldórsson, 27.4.2022 kl. 18:32

4 identicon

Til að sjá hvort skuldir séu miklar eða litlar þarf samanburð og samhengi.

Hvaða sveitarfélög eru með lægri skuldir per íbúa? Og ég spyr um þá sem eru lægri vegna þess að upptalning á þeim sem skulda meira væri of löng upptalning.

Hversu mikið af skuldum Reykjavíkur eru til komnar vegna covid? Ætla má að tekjusamdráttur og kostnaðaraukning hefðu verið eins sama hvaða flokkar hefðu skipað borgarstjórnarmeirihlutann.

Hversu mikið af skuldum Reykjavíkur eru eldri en borgarstjórnarmeirihlutinn?   Hversu stór hluti eru skuldbindingar frá því fyrir hrun?   Fyrir aldamót?   Reykjavík var ekki skuldlaus þegar þessi borgarstjórnarmeirihluti tók við.

Ég á ekki von á að þekking Gunnars á skuldum sveitarfélaga og fjárhag sé á því plani að hann geti svarað svo mikið sem einni af þessum spurningum.

Það er slæmt í pólitík og eyðileggur oft góðan áróður og snilldar blekkingar að setja hlutina í samhengi.

Vagn (IP-tala skráð) 27.4.2022 kl. 19:51

5 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Vagn og Hörður, flest sveitarfélög skulda, sum mikið önnur minna. Krónur og aurar segja kannski alla söguna, enda sveitarfélög misstór, en fá ef nokkur eru þó komin með skuldahlutfall sitt yfir 200%, eins og Reykjavík.

Við hrun fóru sum sveitarfélög illa, sum tæknilega á hausinn. Flest þeirra hafa risið upp úr öskustónni, hafa lagt ofuráherslu á að greiða niður skuldir sínar. Eina sveitarfélag landsins sem hefur safnað skuldum frá hruni, svo einhverju nemur, er hins vegar Reykjavíkurborg. Önnur hafa bætt sína stöðu.

Það hefur hins vegar verið kunnur leikur meirihluta borgarstjórnar að fegra og fela óhagstæða niðurstöðu. Það kallast blekkingar.

Gunnar Heiðarsson, 27.4.2022 kl. 23:09

6 identicon

Mörg sveitarfélög áttu eignir sem voru seldar, hitaveitur og vatnsveitur-hlutar í Landsvirkjun-fasteignir, skólar, félagsheimili, íþróttamannvirki-o.s.frv. til að grynnka á skuldum og útsvarið hækkað upp í hámark. Seldi Reykjavík OR, ráðhúsið og leikskólana? Hefði skuldastaðan ekki verið önnur ef ekki væri fyrir skuldir OR og fleiri borgarfyrirtækja, sem ekki voru seld, og hvers skuldir þú telur með í skuldum borgarinnar? 200% hlutfallið fæst aðeins með því að telja skuldir fyrirtækja borgarinnar með. En ekkert sveitarfélag á eins mikið af þeim fyrirtækjum og fasteignum sem þjónusta íbúana og Reykjavík.

Á skuldsetning OR til að reisa virkjun og grafa lögn í jörð að ráða því hvort borgarsjóður byggi skóla sem ekki mygla og fjölgi leikskólaplássum?

Á að lækka skuldir með sölu eigna, eigna sem skila borgarsjóði tekjum þó skuldir hvíli á fyrirtækinu, eins og önnur sveitarfélög hafa gert? Skuldir borgarsamstæðunnar mundu lækka um skuldir þess selda og söluverðið mætti nota til að greiða niður beinar skuldir borgarsjóðs. Ert þú að kalla eftir því? Væru borgarbúar betur settir ef OR væri í eigu Samherja?

Vagn (IP-tala skráð) 28.4.2022 kl. 01:06

7 identicon

Reykjavíkurborg á sína mjólkurkú, hitavetuna, sem hefur verið blóðmjólkuð á kostnað reykvíkinga og ekki síður íbúa nágrannasveitarfélaganna. Þannig hafa íbúar nágrannasveitarfélaganna í raun verið skattlagðir af borginni til að standa undir óráðsíu samfylkingarhyskisins.

Bjarni (IP-tala skráð) 28.4.2022 kl. 13:26

8 identicon

Vagn -  OR hefur alla tíð verið alfarið í eigu borgarinnar.

Bjarni (IP-tala skráð) 28.4.2022 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband