Verslunin grefur hægt en örugglega undan sjálfri sér

Verslunareigendur og samtök þeirra geta barið hausnum við stein. Þessir aðilar halda áfram að reyna að afsaka þá svívirðu sem þeir stunda gagnvart neytendum. Meðan þessir aðilar geta ekki komið því í sinn þykka haus að verslun er þjónusta fyrir neytendur, munu þeir stunda þennan leik. Og enginn mun tapa meira á þessu en einmitt verslunin sjálf.

Neytendur eru ekki hálfvitar, neytendur láta ekki segja sér hvar þeir eiga að versla. Þeir líta einfaldlega á tvo þætti, verð og þjónustu. Út frá þessum punktum versla neytendur. Eins og álagning er almenn hér á landi, er auðvitað leitað annarra leiða og meðan viðhorf talsmanna verslunar breytist ekki, líta neytendur það sem lélega þjónustu.

Það er alveg sama hvernig reiknað er, íslensk verslun leggur óhóflega á allar vörur, sérstaklega svokallaðar nauðsynjavörur. Talsmenn verslunar hafa borið við íslenskri krónu, flutningskostnaði og smáum innkaupum af erlendum heildsölum. Venjulegur neytandi, sem verslar á netinu býr líka við íslenska krónu, þarf að borga hlutfallslega mun hærri flutningskostnað og hefur ekki tök á að versla við erlendan heildsala, heldur verslar hann af smásala!

Þrátt fyrir þetta eru mörg dæmi þess að íslenskur neytandi geti keypt sér far til útlanda, verslaða þar þann hlut sem honum vantar (t.d. dekk undir bílinn sinn), flogið með vöruna heim, borgað af henni öll tilskilin gjöld til ríkisins og átt eftir afgang í samanburði við íslenska verslun með sama hlut!

Ef það er rétt hjá SVÞ að sterkara gengi og lækkun tolla hafi skilað sér til neytenda, segir það einungis það eitt að álagningin sé svo yfirdrifin að þessar lækkanir vigta nánast ekki neitt í verðinu!!

 


mbl.is Sterkara gengi og lækkun tolla hefur skilað sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

verslunareigendur svara venjulega- VERÐ FRÁ HEIKDSALA ER SVONA HÁTT- VIÐ ERUM EKKI Í AÐSTÖÐU TIL AÐ LÆKKA NEITT- þessi svör fekk eg þegar eg var að kaupa sjampó á hárgreiðslustofu- sem hafði HÆKKAÐ FRÁ Í FYRRA  !!!

Erla Magna Alexandersdóttir, 19.12.2016 kl. 18:52

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Þú átt bara að nota handsápu í hárið eins og ég!! Í alvöru þá er verðlagningsaðferðin á Íslandi að fyrst er lagt á 700% og svo er lagður á allur kosnaður. Þannig að sjampóið þitt þykknar í meðferðinni, heldur betur. Svaka eifalt!

Eyjólfur Jónsson, 19.12.2016 kl. 19:16

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Eru heildsalar ekki kaupmenn? Þá ætti öllum smásölum að vera frjálst að sækja sér byrgðir hvert sem er, jafnvel panta þær á netinu, eins og hinn venjulegi neytandi gerir. Eða er það virkilega svo að íslenskir smásölukaupmenn séu bundnir einhverjum þrælsböndum við heildsala?

Við vitum auðvitað að stæðstu verslanirnar og stæðstu heildsalar eru eitt og hið sama. Þar gagnar lítið að benda á hvern annan.

Gunnar Heiðarsson, 20.12.2016 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband