Stefna ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum

Forsætisráðherra hefur skíra stefnu í efnahagsmálum. Hún vill ganga í ESB og hún vill taka upp evru, þar með er það upp talið. Annað vill hún að stjórnarandstaðan sjái um!

Það er bara eitt smá vandamál hjá forsætisráðherra, samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn er ekki alveg sammála henni, sem veldur aftur því að hún getur ekki einu sinni komið þessum tveim málum, sem hún leggur svo mikla áherslu á, áfram.

Reyndar er vandséð hvernig aðild að ESB og upptaka evru hjálpar okkur núna. Það tekur að minnsta kosti tvö til þrjú ár enn að öðlast aðild að ESB, ef menn kæmu sér saman um að vera samstíga í þeirri vegferð og köstuðu öllum kröfum um undanþágur fyrir borð. Eftir að aðild er fengin tekur enn nokkur ár áður en hægt er að taka upp evru. Það er engin leið til að við lifum svo lengi ef ekkert á að gera þangað til.

Þar sem forsætisráðherra kallar svo stíft eftir tillögum stjórnarandstöðunnar og hefur ekkert raunhæft sjálf að leggja fram, til bjargar okkur, gerði hún réttast í því að rjúfa nú þing og boða til kosninga!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband