Allskonar fyrir flokksgæðingana en ekkert fyrir .............

Félagsmálayfirvöld ættu frekar að skammast sín!!

Það er mikil ósvífnin í þeim sem deila á matargjafir og þær hjálpastofnanir sem þeim sinna. Meiri er þó ósvífnin og skömmin þegar sú gagnrýni kemur frá þeim sem eiga að sjá til þess að þessar matargjafir séu óþarfar!

Samkvæmt lögum ber sveitafélögum skylda til að koma þeim til hjálpar sem ekki geta brauðfært sig og sína. Þessi lög hafa verið brotin, Reykjavíkurborg hugsar meira um "allskonar fyrir aumingjana", þ.e. flokksgæðingana sína. Ekki er hugsað um þá sem minna mega sín.

Halda félagsmálayfirvöld að fólk standi í biðröð eftir mat í poka, að gamni sínu?

Það er illa farið fyrir samkendinni þegar þeir sem eiga að standa vörð um hana láta slík orð frá sér fara!! Skömm sé þeim!!

Þær hjálpastofnanir sem hafa staðið að þessum matargjöfum hafa unnið þrekvirki. Óeigingjarnt sjálfboðastarf þeirra hefur bjargað lífi fjölda fólks. Það er skítlegt eðli þess fólks sem telur sig í stöðu til að deila á þá sem er tilbúnir að fórna sér fyrir slíka vinnu!!

 


mbl.is Deila á matargjafir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Það er ótrúlegt að Stella skuli deila á þessa aðstoð - hvar er frumkvæði borgarinnar - borgarstjórnar - borgarstjórnar sem nýverið stóð fyrir fyrstu hópuppsögninni í sögu borgarinnar -

Allt í boði Gnarr og Dags B.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 5.11.2010 kl. 06:25

2 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Gnarr setti ekki allt á hausinn, hann tók bara við brenndu búi og þarf að vinna eftir því.

Ofboðslega þreyttur á svona kálhausum sem eru það flokksblindir að þeir geti ekki séð vandann.

Tómas Waagfjörð, 5.11.2010 kl. 06:31

3 Smámynd: Linda

100% sammála höfundi bloggs.

Linda, 5.11.2010 kl. 07:55

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er rétt hjá þér Tómas, Gnarr setti ekk allt á hausinn, en það er aumt að sjá hann opinbera fávisku sína í fjölmiðlum. Hann hefur minna en ekkert vit á stjórnu höfuðborgarinnar og reiðir sig á hjálp hvíslara.

Jón Gnarr og félagar tóku við nokkuð góðu búi í Reykjavík, þó kreppan bíti þar sem annarsstaðar. Þeim hefur tekist að rústa því sem eftir var og það sem meira er þeir virðast ekki kunna skil á skyldum sveitafélaga. Ein af þeim er að sjá til þess að enginn svelti eða líði skort!!

Gunnar Heiðarsson, 5.11.2010 kl. 10:59

5 identicon

Í tíð "vinstristjórnarinnar" hefur fátækt aukist til muna og kjör lítilmagnans hríð versnað, auk þess sem þessari stétt lítilmagnanum hefur fjölgað sem aldrei fyrr. Lítil börn róta nú í ruslinu í leit að mat og gamalmenni eru borin út á götu, og við erum orðin eina ríkið í okkar heimshluta sem neitar sumum ungmennum um skólagöngu, þó þau hafi náð öllum samræmduprófum, út af niðurskurði í menntakerfinu. Á sama tíma er hvergi skorið niður í yfirbyggingunni og milljörðunum sem hefði verið hægt að eyða í að laga mennta- og húsnæðismál og hjálpa bágstöddum öllum kastað á bálið í Brussel. Þetta hyski er ekki vinstrimenn. Ég er vinstrimaður. Vinstrimenn eru lýðræðislega hugsandi fólk sem sólundar ekki fé þjóðarinnar í einkahobbý sín, esb þruglið, meðan börnin róta í ruslatunnunum, heldur virðir jafnrétti manna og vilja fólksins og reynir að tryggja jöfn lífskjör allra. Þessi ríkisstjórn er aftur á móti tilbúin að brjóta lög og reglur í auðvaldsdýrkun sinni, í því skyni að sleikja sig upp við auðvaldið á kostnað almennings. Hæstaréttardómar eru jafnvel hunsaðir, svo sem gerðist í tilfelli Lýsingar, en dómurinn sem þá féll hefði getað forðað þúsundum frá gjaldþroti og vonarvöl. En ríkisstjórnin sýndi með því að hunsa þann dóm, nokkuð sem er víða ólöglegt og hefði eitt og sér nægt sem brottrekstrarsök fyrir ríkisstjórnina, þar sem þrískipt vald er tryggt með lögum í stjórnarskrá, sitt rétta eðli og fyrir hvern hún starfar í raun og veru. Annað hvort voru þau aldrei vinstrimenn, heldur bara Trójuhestar, eða þá eru þau pólítískar mellur sem einhver ill öfl borga undir borðið. Aðrar skýringar standast ekki nánari athugun. Síst af öllu gjammið í nýju trúarbrögðunum hans Steingríms sem hafa gert Davíð Oddsson að allsherjar grýlu og djöfli sem allt sem miður hefur farið í veraldarsögunni er að kenna, og gerir hans menn stikkfría frá öllu og þeir geta jafnvel notað tilvist Davíðs Oddssonar sem afsökun til að fremja hvaða glæp sem er "Skrattinn freistaði mig" = "Davíð neyddi mig til þess", en einungis einfeldningar taka svona bókstafstrú og óráðshjal trúanlegt, burtséð frá hvað manni þykir persónilega margt miður í fari pólítíkur Davíðs Oddsonar. Sannleikurinn blasir við. Þau eru kannski lýðræðislega kjörin, en það var Hitler nú líka. Lýðræðissinnar eru þau ekki, það hafa þau sýnt með að marg brjóta á fólkinu í landinu, jafnvel í trássi við Hæstarétt, sem þau óvirða eins og þeim sýnist. Hvort sem þau eru að þiggja mútur eða annað kemur til, þá eiga þau ekki skilið að sitja þarna lengi. Sagan sýnir að það að láta fasista og elítista sem óvirða sitt eigið fólk sitja í skjóli "lýðræðis" er stórhættulegt og veit ekki á gott. Við höfum valið, annað hvort kveðjum við land vort og þjóð bless, frelsi vor og mannréttindi, kjör og auðlindir......eða ríkisstjórn þessa. Við höfum þetta val ekki mikið lengur. Tíminn líður hratt að úrslita stund. Láttu ekki þitt eftir liggja http://www.utanthingsstjorn.is

J.S. (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 11:47

6 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Heyr, heyr, JS

Gunnar Heiðarsson, 5.11.2010 kl. 12:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband