Mogginn ekki að standa sig!!

Hvað er eiginlega að ske. Fyrst lokar mogginn fyrir aðgang að ritstjórnargreinum sínum, nema fyrir áskrifendur. Síðan fjarlægja þeir flipann á forsíðunni fyrir bloggið.

Ritstjórnargreinar moggans hafa verið einstaklega vel skrifaðar og skemmtilegar. Þar er tekin ákveðin afstaða til málanna, afstaða sem margir eru að sjálf sögðu ekki sammála. Það gerir lífið skemmtilegra, ef allir væru sammála væri ansi leiðinlegt að lifa. Við verðum að geta haft skoðanaskipti.

Ég skora á moggann að opna þessar greinar aftur fyrir alla. Þær eru ESB sinnum holl lesning og okkur hinum til gamans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband