2.5 milljarðar er ekki skattur, segir ráðherra
9.4.2025 | 09:51
Auðvitað er þetta skattahækkun, um það þarf vart að deila. 2.5 milljarðar detta bara ekki af himnum ofan.
Mogginn fær endurskoðanda til að fara yfir málið og auðvitað fer hann yfir það út frá eigin heimi, út frá heimi ofurlaunafólksins. Eftir að hafa farið yfir málið og sett upp ákveðið dæmi, gefur hann út nokkuð háa tölu sem ofurlaunafólkið gæti þurft að greiða meira í skatt. Þegar hann síðan endurskoðar eigin útreikninga, tvisvar, lækkar þessi aukaskattur nokkuð.
En þetta er ekki síður skattahækkun fyrir lægra launað fólk. Ef notað eru sömu forsendur og endurskoðandinn gerir, þ.e. að taka hjón sem bæði eru á launum á skattþrepi, annað þeirra gert launalaust en hitt tvöfaldað í launum, dæmi sem er vel hugsandi hjá láglaunafólki en vandséð að gangi upp hjá ofurlauna hópnum, kemur í ljós töluverð hækkun á skatti. Fyrir þá sem eru á lægstu laununum skiptir hver króna máli.
Malið er einfalt. Hjón sem af einhverri ástæðu þurfa að nýta persónuafslátt annars aðila og sú nýting hjálpar því að koma hluta launa undir næsta skattþrep, munu greiða þennan skatt. Þar skiptir ekki máli hvar í launastiganum það er, heldur hitt hvort samsköttun hjálpi því að koma hluta launa sinna niður um skattþrep, auk þess sem ekki er hægt að nýta persónuafslátt að fullu.
Það stappar nærri furðu að fjármalaráðherra skuli halda því fram að þetta muni einungis lenda á hálaunafólki. Nefnir reyndar engin mörk þar. Jafnvel hjón á lögbundnum lágmarkslaunum gæti þurft að greiða þennan skatt, ef reikniforsendur endurskoðandans eru notaðar. 2.5 milljarðar er upphæð sem hann segist ætla að ná og það án þess að það lendi á almenningi!
Segir að 2.5 milljarða skattur sé ekki skattur!
![]() |
Þetta er einfaldlega skattahækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Fjármál, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:54 | Facebook
Athugasemdir
Hann er náttúrulega ekkert annað en "BAKBORÐSSLAGSÍÐUKJÁNI" sem einhverir myndu líka kalla Pólitískt Viðriðni og virðist nú ekki vera "beittasti hnífurinn í skúffunni"......
Jóhann Elíasson, 9.4.2025 kl. 11:37
Sæll Jóhann.
Það er aumur stjórnmálaflokkur sem hefur ekki betra mannaval en svo að leita þurfi út fyrir kjörna þingmenn til að manna ráðherrastól.
Kveðja
Gunnar Heiðarsson, 9.4.2025 kl. 12:50
Var að lesa grein eftir Indriða fyrrum skattstjóra
"endurgjald fyrir aðgang að dýrmætu hráefni sem samfélagið veitir takmörkuðum hópi útgerðarmanna."
en á þetta ekki við um allt hráefni, vatn bæði kallt og heitt, rafmagn, ferðamannastaði, möl, sandur
Í Reykjavík mætti jafnvel segja að bílastæði væru dýrmætt hráefni
Grímur Kjartansson, 9.4.2025 kl. 20:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.