Minningin sem hvarf

Drottningarviðtal ruv var við Birgi Þórarinsson, þennan morguninn. Skemmst er frá að segja að eftir þetta viðtal sat maður hljóður, vissi í raun ekki hvað maður átti að halda. Því hlustaði ég aftur á þetta viðtal, til að fullvissa mig um að ég hafi heyrt rétt. Það breytti engu, enn var ég agndofa.

Birgir lýsir þarna mjög illri vist innan Miðflokksins, síðustu rúm þrjú ár. Þá telur hann vistina hafa versnað til muna eftir síðustu áramót. Hann getur þó ekki bent á neitt sérstakt atvik máli sínu til stuðnings, einungis eigin tilfinningar. Reyndar sumt af því sem hann heldur fram í viðtalinu í andstöðu við ummæli fjölda annarra. Virðist taka hverjum hlut á versta veg, sem árásir á sig sjálfan, jafnvel þó alls ekki sé verið að ræða hans verk eða ábyrgð.

Aðspurður um hvers vegna hann hafi þá ekki sagt sig úr flokknum fyrr, svaraði hann að það hefði verið ábyrgðarhlutur, svo skömmu fyrir kosningar (hann hafði jú þrjú ár til þess). Telur hann meiri ábyrgð felast í að bjóða sig fram á fölskum forsendum og blekkja kjósendur?

Vel mátti skilja á máli Birgis að hatur hans til sumra flokksfélaga er djúpt. Jafnvel svo djúpt að hann telur sig ekki geta unnið með þeim. Er hugsanlegt að svo djúpt hafi þetta hatur rist, að hann hafi gert sér það að leik að bjóða sig fram fyrir Miðflokkinn, í þeim eina tilgangi að geta skaðað hann eftir kosningar?

Það er erfitt að trúa slíku en stundum er sannleikurinn lyginni líkari.

Í það minnsta er ljóst að Birgir mun ekki geta látið jafn mikið til sín taka á Alþingi eftir þessi vistaskipti. Þegar svo hentar, mun hann geltur til jafns við aðra þingmenn Sjálfstæðisflokks, þegar á þarf að halda. Slík gelding stundaði flokkurinn á síðasta kjörtímabili, m.a. í orkupakkamálinu sem og í umræðum um koma þriðjungi landsins undan lýðræðislegri stjórn, í hendur embættismanna. Orkupakkamálinu er ekki lokið, fjórði pakkinn liggur á borðinu og fari sem sýnist, mun hálendið enn vera í hættu. Hvernig ætlar Birgir að komast hjá geldingu Sjálfstæðisflokks í þessum málum?

Í síðasta bloggi mínu ræddi ég sama mál og nú. Kallaði þá grein "Minning um mann". Enda mun minning þessa næstum fyrrum stjórnmálamanns verða lítil.

Kannski er rétt að kalla þessa grein "Minningin sem hvarf". Eftir viðtal hans á ruv í morgun er ekki lengur neins að minnast!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég missti af því og hef aldrei heyrt hann í viðtali um skoðanir sjálfs sín,þótt margar hafi hann átt á úS.-En ef þú ert dolfallinn er ég orðin forvitinn að ná viðtalinu,þótt ekki væri nema til að fagna að hann er farinn frá eina alvöru rammíslenskum flokki.

Helga Kristjánsdóttir, 12.10.2021 kl. 18:35

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Cherchez la femme  segja Fransmenn, Ekkert er eins og það sýnist.

Það er eitthvað á bak við þetta sem við höfum ekki rætt. Getur ekki verið að þarna séu peningar eða fríðindi á spýtunni sem hann Biggi fær með þessu móti sem hann fengi ekki með því að vera óháður þingmaður  eða segja af sér þingmennsku.Ætli Guðræknin hjá honum eigi sér ekki veraldlegar eða Guðrækilegar skýringar heldur Mammonskar?

Halldór Jónsson, 14.10.2021 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband