Ég vil líka jarðgöng!!

Ég vil líka jarðgöng. Veit reyndar ekki alveg hvar, en það ætti ekki að vera vandamál að finna eitthvað fjall til að bora í. Til vara myndi ég sætta mig við vegstokk. Hann mætti alveg vera bara yfir innkeyrslunni hjá mér.

Getum við ekki öll verið sammála um það Siggi?


mbl.is Vill jarðgöng á Tröllaskaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þormar

Best er að hafa jarðgöng sem víðast. Þau eru að vísu dýr, en þau endast lengi.

Að vísu er vafasamt að grafa jarðgöng undir Hellisheiði eða til Vestamannaeyja.

Hörður Þormar, 26.10.2019 kl. 14:51

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er KS klíkan á Sauðárkróki sem rekur þetta mál og Stefán er þar innvígður í höfuðvígi framsóknarmafíunnar á landinu. Þeir vilja einfaldlega fá umferðina af þjóðvegi 1 í gegnum Krókinn til að maka krókinn. Þverárfjall er ekkert betra en Öxnadalsheiðin á vetrum. Verri ef eitthvað er.

Þetta er týpískt hagsmunapot í anda gömlu sambandsmafíunnar sem enn lifir góðu lífi á Króknum. Þar þrífst ekkert nema að KS eigi það, svo þetta er allt fyrir þeirra buddu.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2019 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband