Misjafnt hafast þingmenn að

Meðan þingmaður Framsóknarflokks hefur áhyggjur af því að norskir stórútgerðamenn fái ekki að að stunda laxeldi við strendur okkar og óskar eftir eftir fundi í atvinnuveganefnd til að reyna að bæta þeim norsku skaðann, þá vill annar þingmaður, einnig í sömu nefnd en öðrum flokki, kalla nefndina saman til að ræða nýjasta útspil landbúnaðarmála. Í því útspili sínu ætlar ráðherra að demba íslenskum landbúnaði ofaní skúffu, svo hann þurfi nú ekkert að velt þeirri atvinnugrein meira fyrir sér.

Ef einhver hefði sagt við mann, fyrir nokkrum árum síðan, að ráðherra úr Sjálfstæðisflokki myndi leggja niður íslenskan landbúnað, bara rétt sí svona og það með einu pennastriki, hefði maður samstundis talið þann mann eitthvað undarlegan, jafnvel ekki heilann á geði. Kratar jú og þau æxli sem frá þeim hefur vaxið, eins og t.d. Viðreisn, væru vissulega trúandi til þessa, jafnvel varlegt að treysta VG til að standa vörð um hagsmuni landbúnaðarins eftir að Jón Bjarnason stimplaði sig út af Alþingi. En ekki móðurflokkur landsmanna. Ekki er neinu að treysta hjá Framsókn lengur, þó þeirra aðal vígi hafi alla tíð verið á landsbyggðinni. Þar er nú við völd fólk sem erfitt eða útilokað er að treysta, enda með meiri huga við að hjálpa norskum stórútgerðum en íslenskum bændum.

Að setja íslenskan landbúnað undir skrifstofu alþjóðamála sýnir annað af tvennu; þekkingarleysi ráðherrans á landbúnaði eða vísvitandi niðurlæging hans gegn þessum málaflokk. Hvort heldur er skiptir í sjálfu sér litlu máli, ráðherrann er greinilega ekki hæfur til síns starfs! Hann hefði allt eins getað afhent SVÞ yfirráð yfir þessum málaflokk.

Það fer að verða fátt um fína drætti fyrir okkur kjósendur. Þegar þessi ríkisstjórn loks fellur getur landsbyggðafólk afskrifað strax 6 af 8 stjórnmálaflokkum sem hafa menn á þingi. Þingmenn þessara sex flokka eru svo órafjarri fólkinu í landinu, sérstaklega því fólki sem býr utan borgarmarkanna, að óhjákvæmilega mun kvarnast verulega úr fylgi þeirra í næstu kosningum, sem vonandi verða haldnar sem fyrst svo ekki hljótist enn frekari skaði af.

 


mbl.is Hætt við ráðningu skrifstofustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Hvernig er hægt er að fá það út að Íslenskur landbúnaður eigi heima undir deild í ráðuneytinu sem sinnir alþjóðamálum? 

 Eitt sinn hafði ég allt að því óbilandi trú á núverandi ráðherra landbúnaðar og sjávarútvegsmála, sem stjórnmálamanns. Sól hans hefur ekki einungis hnigið til viðar, hvað það varðar, heldur hefur hann skipað sér í röð óberma í mínum huga, innan míns flokks. Svona eiginlega eins og allt heila slektið í forystu Sjálfstæðisflokksins.

 Hvað vakir fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins þessi dægrin, með framkomu sinni og framgangi, er með öllu óskiljanlegt almennum Sjálfstæðismanni.

 Forystan er ekki einungis komin algerlega úr takti við stefnu flokksins, heldur hefur hún einnig gefið öllum sönnum Sjálfstæðismönnum fingurinn. 

 Sá fingur mun rata beina leið upp í þeirra eigin óæðri enda í næstu kosningum, svo mikið er víst.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 28.9.2018 kl. 21:31

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Takk fyrir innlitið Halldór

Það er alveg hreint með ólíkindum hvernig búið er að fara með móðurflokk okkar landsmanna, þann flokk sem hefur allt frá stofnun borið höfuð og herðar yfir alla aðra stjórnmálaflokka.

Og þó, kannski er þetta ekkert undarlegt. Trekk í trekk hafa þingmenn og ráðherrar flokksins unnið gegn honum. Trekk í trekk hafa þingmenn og ráðherrar flokksins unnið gegn eigin stefnu. Jafnvel hefur gengið svo langt, þegar æðsta stofnun flokksins. landsfundur, ákveður einhver mál, þá mætir formaður þeirra í fréttir þar sem hann er farinn að túlka þær samþykktir á einhvern allt annan veg en samþykktin hljóðar. Sumir landfundarmenn jafnvel ekki komnir heim til sín þegar formaðurinn gengur af göflunum!

Svona háttarlag leiðir einungis til eins, hrun flokksins. Þá skiptir einu hversu góð stefna hans er, enda lítið að marka hana ef forustan heygist á að fylgja henni og jafnvel vinnur þvert gegn henni.

Það verður fróðlegt þegar tveir ráðherrar flokksins flytja þingmálið um orkupakkann í vetur. Þá mun sjást vel hvaða þingmenn líta sig vera vinnumenn kjósenda og hvaða þingmenn telji kjósendur vera einhverja plágu sem einungis þurfi að heilla í nokkra daga fyrir kosningar.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 29.9.2018 kl. 08:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband