Er þetta siðlegt ?
5.12.2011 | 06:23
Er hægt að veita einhverjum friðhelgi gagnvart málsókn? Rétt sí svona?
Er siðlegt að veita einhverjum þá stöðu að þurfa ekki að fara að Íslenskum lögum hér á landi?
Það verður ekki betur séð af þessari frétt, en að ESB sé þegar búið að gera samning við ríkisstjórn Íslands um að koma hér inn, algerlega á eigin forsemdum og utan laga og réttar!
Var eitthvað minnst á þetta í samþykkt Alþingis frá 16. júlí 2009?
ESB fær friðhelgi og eftirlitsheimildir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég vil að það verði farið ofan í saumana á þessu máli vegna þess að ef það var gengið svona langt í samningum við ESB fyrir síðustu kosningar þá er það mjög alvaralegt á sama tíma og Ráðamenn okkar göluðu og góluðu hér hástöfum skjaldborg fyrir heimili og fyrirtæki Landsmanna og helmingur Ríkisstjórnar gólaði ekkert ESB...
Það á að fara ofan í saumana á þessu og refsa þessari Ríkisstjórn með brottrekstri og launamissi vegna þess að Íslendingar upp til hópa vilja geta treyst orðum Ráðamanna sinna og lygar og svik eiga ekki að líðast í samfélaginu og allra síst hjá þeim sem eiga að bera hag okkar og velferð fyrir brjósti sér...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 5.12.2011 kl. 08:04
Þakka þér Gunnar, og ég tek undir orð Ingibjargar.
Það er undarlegt að ráðherrar eru aftur og aftur sagðir ljúga og ganga á bak orða sinna en það gerist ekkert.
Eru ósannindi vinstri ráðherra bara allt í lagi á Íslandi, eða er þetta bara allt saman ósatt sem sagt er um ljúgandi, svíkjandi og yfirhylmandi ráðherra.
En ef svo er hvernig stendur þá á því þessir sömu ráðherrar kæra ekki þessa ósannindamenn fyrir rógburð og mannorðs meiðingar?
Hrólfur Þ Hraundal, 5.12.2011 kl. 23:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.