Öfugmælavísur Ögmundar
28.9.2011 | 07:02
Ögmundur Jónasson ferðast um heiminn og flytur boðskapinn. Nú heldur hann fyrirlestur um ágæti þess að blása upp ríkisbáknið, að ríkisrekstur sé hagkvæmari en einkaframkvæmd. Þetta er vissulega í anda hans sósíalíska hugsanaháttar, en gaman hefði verið að vera fluga á vegg á þessari ráðstefnu, þó ekki væri til annars en að sjá svipbrigði annar fundarmanna við þessum ummælum.
Það má svo sem segja að þessi aðferð hafi virkað vel hér á landi síðustu tvö ár. Flestar framkvæmdir hafa ekki kostað neitt, enda ekkert gert!
Kannski Ögmundur haldi aðra ræðu í dag og segi þessu fólki á ráðstefnunni í Mexikó hvernig skuli samið við þjóna réttvísinnar!! Það ríkir skálmöld í Mexíkó og þeim þætti sjálfsagt vænt um að fá sýn Ögmundar á því hvernig löggæslukerfið skuli rekið!
Eftir ræðuna í gær eru þeir nefnilega búnir að átta sig á að best er að gera þver öfugt við boðskap Ögmundar.
Einkaframkvæmd dýrari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.