Lélegir stjórnendur?
29.11.2023 | 00:24
Eru íslenskir stjórnendur fyrirtækja almennt lélegir?
Við þekkjum öll söguna af því þegar nokkrir einstaklingar komust yfir bankakerfið okkar og settu það á hausinn svo fjölskyldum landsins blæddi. Sumir töldu að þar hefðu menn fyrst og fremst verið að sanna þá kenningu að besta leiðin til að ræna banka, væri að ræna hann innanfrá. Eða voru þessir menn kannski bara svona lélegir stjórnendur?
Mörg fyrirtæki voru stofnuð í kjölfar hrunsins, flest þeirra farið á hausinn. Má þar nefna flugfélög og fjárfestingafélög. Þar er greinilegt að stjórnun var léleg.
Íslenskt lyfjafyrirtæki, sem rekið er um allan heim, er rekið með gríðarlegu tapi. Lyfjanotkun hefur þó aldrei verið meiri, hvort heldur er hér á landi eða öðrum löndum hins vestræna heim. Ber það merki þess að hinn íslenski stjórnandi þess fyrirtækis sé góður stjórnandi?
Og nú þarf íslenskt flugfélag að breyta hjá sér afkomuspá, vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Ekki vegna þess að farþegum hafi fækkað svo mikið, einungis pöntunum með skömmu fyrirvar fækkað örlítið og að sögn forstjórans merki um að það sé að ganga til baka. Aldrei hafa verið fleiri ferðamenn sem heimsækja Ísland og þetta ár. Er þetta merki um góða stjórnun?
Þeir sem ekki geta rekið lyfjafyrirtæki með sóma, þegar lyf eru brudd sem sælgæti um allan heim og þeir sem ekki geta rekið flugfélag þegar farþegafjöldi er í hæstu hæðum, ættu kannski að skoða stöðu sína. Kannski hentar þeim betur eitthvað annað starf en stjórnun.
![]() |
Breyta afkomuspá vegna jarðhræringanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Helber lygaþvættingur
27.11.2023 | 08:09
Einn er sá flokkur á Alþingi sem mest hefur predikað siðabót kjörinna fulltrúa. Reyndar var þessi stjórnmálaflokkur stofnaður um það eitt, í upphafi.
Þó er það svo að eini þingmaðurinn sem setið hefur á þingi og hefur á baki sér áfellisdóm siðanefndar Alþingis, kemur frá þeim flokki og situr enn sem fastast. Og nú bætist við að fyrsti kjörni fulltrúi Alþingis sem handtekinn er af lögreglu, kemur einnig frá þessum sama flokki. Víst er að hún mun einnig sitja áfram á þingi.
Þeir sem predika siðabót kjörinna fulltrúa og eru gjarnan fyrstir til að kalla eftir afsögnum annarra þingmanna, við minnsta tilefni, ættu auðvitað að sýna gott fordæmi. Og þegar upp koma atvik sem rýrir störf þeirra á einhvern hátt, eiga þingmenn þessa flokks að fara eftir því sem þeir krefja aðra um. Annað kallast tvískinnungur og lygaþvættingur!
![]() |
Kannast ekki við fordæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Einkavæðing andskotans
20.11.2023 | 04:24
Nú þegar við landsmenn erum farnir að byggja svokallaða varnargarða vegna mögulegs hraunrennslis á Reykjanesi, vaknar óneitanlega upp spurningar í huga manns. Spurningar um einkarekstur á innviðum.
Þeir varnargarðar sem nú eru í framkvæmd og kosta munu einhverja milljarða króna, eru sagðir til að verja innviði á Reykjanesinu. Innviði sem eru í einkaeign, einkarekstri. Hvernig Bláa lónið getur talist til innviða landsins er svo aftur stór spurning. Afrennsli frá orkuveri sem hefur verið markaðssett erlendis og einhverra hluta vegna komist í eigu einkaaðila. En látum vera að ræða það núna.
Orkuverið sjálft telst óneitanlega til innviða. Um það verður ekki deilt. Það er rekið af einkaaðilum sem hirða af því allan arð sem gefst. Þegar á móti blæs, á síðan ríkið að hlaupa undir bagga. Þarna er eitthvað rangt. Kallast einkavæðing andskotans.
Ef innviðir landsins eru svo mikilvægir að ríkissjóður verður að koma til þegar hætt steðjar af, hlýtur að vera best að slíkir innviðir séu í höndum ríkisins. Að einkaaðilar geti ekki sölsað þá undir sig. Þannig myndi arður af fyrirtækinu, þegar vel gengur, renna í ríkiskassann, sem þá væri kannski sterkari að taka á áföllunum þegar þau ríða yfir. Ef við hins vegar teljum að einkavæða megi þessa innviði, hlýtur sú einkavæðing að taka bæði til hagnaðar og taps.
Það er í sjálfu sér ekkert að því að gera tilraunir til að berjast við náttúruna, þó slíkt hafi sjaldnast tekist. Bygging varnargarða vegna mögulegs hraunflæðis er vart hægt að sjá að takist, sér í lagi þegar ekki er vitað hvort eða hvar gýs. En sjálfsagt að prófa það. Ef ríkissjóður stendur að slíkum tilraunum verður að velja vandlega hvað skal reyna að verja. Vel stæð einkafyrirtæki sem greiða eigendum mikinn arð geta varla verið framarlega í því vali. Þau geta einfaldlega sótt um leyfi til að gera slíkar tilraunir upp á sínar eigin spýtur.
Vissulega er Orkuverið í Svartengi nokkuð mikilvægt fyrir landi og þjóð. Orkuframleiðsla HS Orku er samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins um 184 MW uppsett afl. Það munar sannarlega um það. Þessi orka er unnin úr jarðvarma, fengnum með djúpum borholum í jörðina. Dýpsta holan þeirra er 4,6 km. Alls er virkjunin með 54 háhitaholur, nokkuð vel djúpar. Talið var að hraunið undir Grindavík hafi verið komið 0,8 km upp undir yfirborð jarðar. Nýjustu fréttir eru að kvika nálgist óðfluga yfirborðið nærri Svartsengi og því kannski ekki mesta ógn orkuversins rennsli á hrauni ofanjarðar, heldur eldsumbrot neðanjarðar. Eldsumbrot sem kannski ná ekki upp á yfirborðið en gæti hæglega eyðilegt allar borholur virkjunarinnar.
Þegar við veljum að byggja á þekktum eldsumbrotasvæðum eða virkja þau, verðum við að sætta okkur við að náttúran ræður þar öllu. Ef hún ekki sættir sig við þau áform okkar er enginn mannlegur máttur sem getur stöðvað hana. Skiptir þar engu hvort um efnaða einkaaðila er að ræða eða sveltan ríkissjóð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verðmæti eða verðmæti og siðleysi fjölmiðla
18.11.2023 | 09:40
Ég á engin nógu stór orð til hugganar Grindvíkingum.
Þó ekki hafi enn hafist gos á Reykjanesi er ljóst að þar hafa orðið miklar náttúruhamfarir, með tilheyrandi tjóni á mannvirkjum og innviðum. Margir eiga um sárt að binda, hafa tapað sínu heimili. Enn fleiri lifa í óvissu um framtíðina. Vita ekki hvort þeirra heimili mun einnig tapast, eða hvort yfirleitt verður aftur snúið í heimabæinn. Tap og missir eigna er skelfileg, enn verri er óvissan. Fyrir leikmann sem horfir þessa atburði úr fjarska, er erfitt að gera sér í hugarlund hvernig Grindvíkingum líður. Mestu verðmætin, fólkið sjálft, hefur enn sloppið frá fjörtjóni og ber sannarlega að þakka það.
Sá sem fylgist með þessum hamförum úr fjarka á kannski auðveldara að meta hvernig til hefur tekist í stjórnun mála, vegna þessara skelfilegu atburða. Sem fyrr mæða verklegar athafnir mest á hjálparsveitum landsins. Stjórnunin er hins vegar í höndum stjórnvalda, með aðstoð frá Veðurstofunni og Almannavörnum. Verkleg stjórnun er í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum. Satt best að segja verður að segjast eins og er að þarna hafa hlutir þróast á misgóðan veg og hægt að gagnrýna margt. Ekki hjálparsveitarfólkið, það vinnur sína vinnu að alúð. Annað verður sagt um allar ákvarðanatökur og stjórnun.
Björgun verðmæta eru orð sem mikið heyrast í fréttum. En hvað eru verðmæti eða verðmætabjörgun? Peningaleg verðmæti eru mörgum ofarlega íhuga, en meiri verðmæti verður að telja persónulega hluti fólks, jafnvel þó lítið fengist fyrir þá á markaði. Minningar, myndir og hvað það sem tengir fólk við fortíðina eru mestu verðmætin og oftast ómetanleg. Járnarusl og annað, sem hægt er að fá peninga fyrir, má missa sig. Þau verðmæti er auðvelt að endurnýja.
Af aðgerðum stjórnvalda sést vel hvar hugur þeirra liggur, þegar að túlkun verðmæta kemur. Þar er aurinn metinn hærra en andinn. Fyrstu aðgerðir voru að byggja svokallaðan varnargarð um tvö einkafyrirtæki, sem hafa skilað eigendum góðum arði. Ekki er þó meiningin hjá stjórnvöldum að rukka eigendur þessara fyrirtækja um greiðslu á þessum framkvæmdum, heldur eigum við landsmenn að greiða þær. Það má ekki skerða arðgreiðslur fyrirtækjanna til sinna eigenda, eða spilar kannski þar inní að einn eigandi að öðru þessara fyrirtækja er gift ráðherra?
Þar næsta var að hleypa fyrirtækjum, nánast óheft, inn á hættusvæðið í Grindavík, til að bjarga veraldlegum eigum sínum. Þar fengu flutningabílar að athafa sig í tuga tali, við björgun á fiski og öðrum veraldlegum eigum fyrirtækjanna. Fyrirtækja sem einnig hafa verið drjúg í arðgreiðslum til sinna eigenda. Ekki var búið að bjarga málleysingjunum af svæðinu þegar flutningabílarnir birtust, í löngum lestum.
Íbúum var svo loks hleypt inn á svæðið í litlum skömmtum. Mátti dvelja þar örskamma stund, undir vökulum augum hjálparsveitarmanna. Þar var framkoman nokkuð önnur en við fyrirtækin. Enda lítil veraldleg verðmæti á flestum heimilum, þó kannski þau séu meiri hlutfallslega en hjá fyrirtækjunum. Andlegu verðmætin, þau sem tengja fólk við sínar rætur, eru hins vegar mikil. Þá hafa sumir fengið að heimsækja sín hús aftur og aftur, meðan aðrir fá ekki að koma nálægt svæðinu. Þar virðist sem frekjan og auðvitað ef fólk hefur getað sýnt fram á að það sé að bjarga einhverjum veraldlegum verðmætum, riðið baggamuninn.
Það er hreint til skammar hvernig stjórnvöld hafa staðið sig í þessu máli.
Fyrir það fyrsta er fráleitt að halda að einhverjir varnargarðar upp á þriggja metra hæð geti stöðvað framrás hrauns. Það þarf ekki annað en að skoða örlítið myndina sem sést í meðfylgjandi frétt til að átta sig á þeim öflum sem náttúran býr yfir. Bera saman hraunflákana á svæðinu við þessa örlitlu varnargarða. Þá er ekki víst hvort né hvar muni gjósa. Lengd garðanna er slík, væntanlega svo bjarga megi eigum ráðherrafrúarinnar, að vel gæti gosið innan þeirra. Þarna er um minnisvarða að ræða, sem fávískir stjórnmálamenn reisa sér til heiðurs, sem fyrr á kostanað almennings.
Í öðru lagi var forgangsröðun björgunar í Grindavík kol röng. Það fyrsta sem átti að bjarga voru málleysingjarnir. Þeir voru þarna lokaðir af, jafnvel án þess að þeir hefðu vatn eða mat. Síðan átti að leyfa skipulagða för íbúa, til að bjarga sínum verðmætum. Að lokum átt svo að leyfa fyrirtækjum aðgang að svæðinu. Þeirra verðmæti voru öll afturkræf.
Það verður ekki ritað um þessi ósköp án þess að nefna örlítið fjölmiðla og þeirra siðleysi. Meðan íbúar fengu skammtaðar örfár mínútur við björgun sinna verðmæta, fengu fréttamenn og þeirra fylgdarlið að valsa þarna um óáreitt, klukkustundum saman. Þeirra verk virtist fyrst og fremst vera að tefja fólk með fráleitum spurningum. Sumir gerðu tilraun til húsbrots, þó ekki tækist svo vitað sé. Reyndar var hvorki upplýst hvort myndefni eða myndavél hafi verið gerð upptæk, né að lögreglan hafi yfir höfuð skipt sér af málinu. Vel getur verið að viðkomandi hafi verið búinn að fara inn í einhver hús áður en hann varða svo "óheppinn" að lenda í upptöku myndavélakerfis.
Fjölmiðlar eru ævareiðir vegna þess að loks voru settar hömlur á ferðir þeirra inn á svæðið. Telja sitt verk að "upplýsa" almenning. Allar megin upplýsingar eru gefnar upp af viðbragðsaðilum, með fréttatilkynningum og fundum. Hlutur fjölmiðla er að dreifa þeim fréttum til landsmanna. Þeir þurfa ekki að mæta á staðinn til þess og enn síður að tefja fólk. Þá mættu fjölmiðlar örlítið huga að sálarheill fólks sem er í sorg og vanda. Ekki síst þegar sá vandi stafar af skelfilegum náttúruhamförum, þar sem fólk horfir upp á hús sín brotna undan átökum náttúrunnar. Sífelldar bjánalegar spurningar upplýsa ekki nokkurn mann en getur hæglega sært þá sem fyrir ógnaröflunum verða.
![]() |
Yfir 400 skjálftar frá miðnætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nasismi
11.11.2023 | 15:43
Að dæma heila þjóð af því sem stjórnvöld ákveða er fráleitt. Slíkt er ekki hægt að kalla annað en nasisma. Sama hvaða þjóð á í hlut eða hvaða trú hún aðhyllist.
Sumir setja sama sem merki við gyðinga og zionista. Það er eins og að kalla alla íslendinga sjálfstæðismenn, af því sá flokkur hefur verið lengst við völd frá endurreisn sjálfstæðisins. Eða kalla alla Bandaríkjamenn Trumpista, af því það gamalmenni var við völd þar eitt kjörtímabil. Eða að setja alla Palestínumenn undir hatt Hamas. Málflutningur þessa fólks er fráleitur.
Það er ekki til fyrirmyndar hvernig stjórnvöld í Ísrael haga sér og sjálfsagt að fordæma það. Einnig má fordæma árásir Hamas fyrir það að ráðast gegn saklausum borgurum, limlesta þá, taka af lífi og sverta líkin. Og hæla sér af ódæðinu í vefmiðlum. Þar kom almenningur í Palestínu ekkert að verki, ekki frekar en ferðafólk frá Ísrael, sem sækir land okkar heim beri ábyrgð á þeim hörmungum er ríða yfir Palestínu. Þarna berjast vitfirringar á báða bóga. Það á ekki og má ekki dæma viðkomandi þjóðir af verkum þessara vitfirringa.
Þeir sem slíkt gera eru engu betri en nasistar Þýskalands, fyrir miðja síðustu öld.
![]() |
Vilja ekki veita Ísraelum þjónustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bleikur Land Crusier
10.11.2023 | 16:06
Það er sjaldgæft að stjórnmálamenn festist svo í gömlum kreddum að ekkert annað komist að í höfði þeirra. Allt er réttlætanlegt til að ná þeim kreddum fram.
Meirihluti borgarstjórnar berst enn eins og rjúpa við staurinn í þeirri kreddu að koma á gamaldags almenningssamgöngum í borginni, samgöngukerfi sem helst má sjá leifar af í austur Evrópu, frá tímum kommúnista. Og ekki bara að leitað sé hófanna þar eystra um aðferðafræðina, þá er sömu taktík beitt til að opinbera ruglið. Haldnir eru fundir þar sem einræða er haldin um verkefnið og hver sem þorir að gagnrýna það sagður annað hvort heimskur eða gamalmenni, nema hvort tveggja sé.
Öllum brögðum er beitt til að viðhalda fáviskunni. Þar sem umferð er þokkalega greiðfær er þrengt að, þar sem umferð er tafsöm má ekkert gera til úrbóta. Peningavitið virðist algjörlega horfið þessu fólki, gerir ekki greinarmun á hvort verkefnið standist einhverjar áætlanir eða ekki. Skiptir þar engu hvort rætt er um tugi eða hundruð milljarða í krónum talið, eða hvort rætt er um hækkanir í prósentum upp á allt að 100%.
Þeir stjórnmálamenn sem svo djúpt sökkva í eigin heimsku eru jafnvel sjaldséðari en að mæta bleikum Land Crusier út á þjóðvegi. Þó eru slíkir stjórnmálamenn ráðandi yfir höfuðborg Íslands!
![]() |
Þung umferð í borginni kemur ekki á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gýs innan eða utan varnargarðanna?
10.11.2023 | 00:53
Meðan jarð- og eldfjallafræðingar geta ekki sagt til um hvort muni kjósa og enn síður hvar, er næsta fráleitt að reisa einhverja varnargarða. Þá gæti allt eins gosið innan þeirra eins og utan. En verkfræðingarnir eru kátir. Þeir arka nú um og setja niður hæla og veifur, rétt eins og viska þeirra um eldgos sé meiri en vit eldfjallafræðinga. Sem jú vita hvorki hvort né hvar mun gjósa.
Vissulega eru verðmæti í húfi, komi til goss á svæðinu. Mestu verðmætin eru þó í mannslífum og þau verðmæti á að leggja áherslu á að verja. Járnadraslið má alltaf byggja upp aftur. Hvað virkjunina sjálfa áhrærir þá verður ekki séð að hún muni geta lifað af gos í nágrenni við sig, jafnvel þó stærstu varnargarðar yrðu reistir umhverfis hana. Slík umbrot í jarðskorpunni, svo nærri henni, hljóta að hafa áhrif á borholur hennar, jafnvel eyða þeim að fullu. Samfara því að virkjunin leggst af mun Bláa lónið þurrkast upp. Tilvera þess er jú úrgangur frá orkuverinu. Því verður að teljast hæpið að ætla að verja tugum milljarða úr okkar sjóðum til varnar þessa mannvirkis, jafnvel þó dýrt sé. Enn fáránlegra er að ætla að reisa varnargarða vegna einhverra náttúruhamfara sem hvorki er vitað hvort verða né hvar.
Auðvitað er til fólk sem sér sér hag í öllu þessu, vill ná sér í sem mestan aur áður en yfir lýkur. Hvort heldur gýs eða ekki. Verkfræðingar eru þegar byrjaðir að hanna og jafnvel staðsetja varnargarða. Varnargarða sem hvorki er vitað hvort muni halda né hvort eru á réttum stað. Auðvitað vilja þessir menn fá greitt fyrir sína vinnu og tímakaup verkfræðings er ekki sérlega lágt. Verktakar bíða í startholunum, hugsa sér einnig gott til glóðarinnar. Það er bara vonandi að þetta fólk, verkfræðingarnir og verktakarnir, verði ekki gosinu að bráð, ef gýs.
Við eigum fyrst og fremst að hugsa um að verja fólkið okkar. Járnadraslið og drullupollur úrgangsins frá orkuverinu má missa sig, jafnvel þó sá pollur sé heimsfrægur. Það yrði sannarlega mikið tjón en þó minna en sem nemur öllum kostnaði við gerð varnargarðanna. Staðreyndin er að náttúran sjálf er öflugri en nokkur varnargarður og ef gýs og ef hraun rennur í átt að Svartsengi, munu engir varnargarðar stöðva þá framrás náttúrunnar. Allt eins hægt að fá einhvern eldklerk til að reyna að messa yfir náttúruöflunum.
Auðvitað er það svo að það mun örugglega gjósa á Reykjanesinu, hvort sem það verður í náinni framtíð eða seinna. Hvar mun gjósa er aftur stóra spurningin. Nú eru líkur á að það verði norðan eða vestan við fjallið Þorbjörn. En engin vissa er þó fyrir að svo verði. Svæðið sem um ræðir er stórt og allt eins gæti gosið beint undir Svartsengi. Þar er jú greiðfærast fyrir eldinn að ná upp, sökum fjölda borhola á svæðinu. Einnig gæti gosið hinu megin í jaðri landrissins. Um þetta er ekki vitað, ekki frekar en þegar gos hófst við Litla Hrút. Þá töldu eldfjallafræðingar meiri líkur á að gos kæmi upp nær Keili. Enn sorglegri voru ágiskanir þeirra þegar gjósa tók í Geldingadölum.
Við lifum á Íslandi. Við vitum að stór hluti landsins er á goshættusvæði. Við höfum ákveðið að nýta það land til byggðar. Við höfum ákveðið að nýta hita úr iðrum jarðar á þessum svæðum. Ef náttúran sjálf er eitthvað ósátt við þessar ákvarðanir okkar, verðum við að virða vilja hennar. Það stoðar lítt að berjast við öflugustu náttúruöflin.
![]() |
Varnargarðar reistir þegar tillagan liggur fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Siðblinda stjórnmálamanna
8.11.2023 | 23:56
Þegar ruv flutti frétt af því að fulltrúi Pírata í borgarstjórn efaðist um réttmæti þess að ríkisstyrkja fjölmiðla, varð ég nokkuð hissa. Kannski væri einhver glóra í þessu hjá henni. Alla vega varð fréttin til þess að ég gerði meira en að lesa fyrirsögnina, las alla fréttina.
Þar heldur borgarfulltrúinn því fram að tengja eigi slíka ríkisstyrki við það að fjölmiðlar séu ekki pólitískir. Enn meira opnuðust augu mín. Þetta var alveg frábær tillaga hjá borgarfulltrúanum. Reyndar einn hængur þar á, fjölmiðlar myndu þá sennilega ekki starfa lengi í landinu, þar sem ekki finnst einn einasti ópólitískur fjölmiðill hér. Þar er sennilega sá þurftafrekasti pólitískastur, þ.e. ruv. Enda var fréttamaður þaðan fljótur að lýsa yfir frati á þennan málflutning borgarfulltrúans.
En þegar enn lengra var lesið kom í ljós að borgarfulltrúinn var ekki að hugsa um pólitík afskiptaleysi fjölmiðla, vildi bara taka þá af sakramentinu sem ekki þóknuðust henni. Mogganum hafði orðið það á að flytja aðrar fréttir af fjárhagsstöðu borgarinnar en siðblind borgarstjórn heldur fram.
Varla er hægt að hugsa sér meiri siðblindu en þennan málflutning borgarfulltrúans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
OHF
8.11.2023 | 09:04
Eitthvað undarlegasta rekstrarform sem þekkist er ohf, eða opinbert hlutafélag. Þetta rekstrarform er búið að kosta þjóðina mikla peninga án þess að skila í raun nokkru til baka, umfram það sem var áður en rekstraforminu var breytt. Í sumum tilfellum hefur þjónustan minnkað verulega svo vart er hægt að tala um að þjónustan sé yfir höfuð lengur til staðar. Þetta á við um Póstinn ohf. Þar eru sumir landshlutar orðnir nánast án þjónustu.
En þetta á vissulega ekki við um öll fyrirtæki sem rekin eru undir ohf. Sum hafa haldið þjónustustigi sínu nokkuð vel, jafnvel aukið það. Vart er þó hægt að sjá að það hafi gerst vegna þessa rekstrarfyrirkomulags. Mestar líkur á að þar hefðu komið til sama þróun hvort heldur þau fyrirtæki hefðu áfram verið rekin af hinu opinbera eða þau einfaldlega seld á markaði.
Framanaf var þetta rekstrarfyrirkomulag sett á fyrirtæki sem annað hvort stóð til að leggja niður eða selja. Með því að gera þau að opinberu hlutafélagi komust stjórnmálamenn hjá því að taka lokaákvörðunina. Hún fór í hendur stjórnar þessara fyrirtækja. Þar með voru stjórnmálamenn búnir að koma vandanum af sér. Það má telja mörg opinber fyrirtæki sem voru komin í fjárhagslegan vanda, oftar en ekki vegna skuldbindinga ríkisins, s.s. í lífeyrismálum starfsfólks. Rekstur þeirra settur undir ohf, og þau síðan annað hvort lögð niður eða seld fyrir slikk. Skuldbindingarnar voru ætíð færðar yfir á ríkissjóð. Læt duga að nefna eitt fyrirtæki sem dæmi, Sementsverksmiðju Ríkisins. Enginn stjórnmálamaður þurfti að láta fés sitt við gjörninginn, hann var ákveðinn af andlitslausum stjórnum þessara ohf fyrirtækis.
Hin síðari ár hafur hins vegar borið nokkuð á því að fyrirtæki sem rekin eru undir rekstrarfyrirkomulagi ohf, hafi sýnt af sér mikla vangetu til rekstrar. Telja sig geta sótt fé í ríkissjóð eftir sínu höfði og sinnt þeirri þjónustu sem þeim ber, illa eða ekki. Enga ábyrgð virðast þessi fyrirtæki bera og stjórnendur þeirra haga sér oft sem kóngar í ríki sínu. Hef áður nefnt Póstinn ohf, en einnig mætti nefna Ísavía ohf. Bæði þessi fyrirtæki hafa sýnt einstaka vangetu til að reksturs, bæði ganga í ríkissjóð nánast eftir eigin höfði og bæði hafa skert svo þjónustu sína út á landsbyggðinni að vart er hægt lengur að segja þau í eigu landsmanna, þrátt fyrir mikla fjármuni sem til þeirra hefur verið ráðstafað.
Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að halda undir eigu landsmanna þeim fyrirtækjum er sinna grunnþjónustu. Kannski er kominn tími til að setjast niður og fara yfir öll þau ehf sem starfandi eru í landinu, með því markmiði að leggja af það rekstrarfyrirkomulag. Að taka þau fyrirtæki og stofnanir sem reknar eru undir þessu formi og þykja vera hluti af grunnþjónustunni og landsmönnum nauðsynleg, aftur undir ríkisrekstur. Önnur fyrirtæki sem rekin eru sem ohf og ekki teljast til grunnþjónustunnar, verði hins vegar einfaldlega seld, eða lögð niður ef enginn kaupandi finnst.
Ekki er með nokkrum hætti hægt að benda á eitthvað ohf fyrirtæki sem er betur rekið en áður, hins vegar má nefna mörg sem eru okkur landsmönnum þyngri en áður samfara minni þjónustu. Við kjósendur höfum hins vegar ekkert lengur um það að segja hvernig þessi fyrirtæki eru rekin, ólýkt því sem áður var, er stjórnmálamenn þurftu að svara fyrir rekstur þeirra, í kosningum.
Eitt örlítið dæmi um hvernig Pósturinn er rekinn. Keypt var öflug flokkunarstöð fyrir bréf og pakka, svo öflug að hálfa væri nóg. Til að sýna fram á eins mikla nýtingu vélarinnar og kostur var, var sú ákvörðun tekin að allur póstur á Íslandi færi gegnum vélina. Það segir að ef sá er sendir jólakort til nágrannans í næsta húsi og setur það í póst, þá fer jólakortið í gegnum þessa vél. Hvort heldur viðkomandi býr á Ísafirði eða Vopnafirði. Jólakortið þarf þá að fara fram og til baka yfir landið, til þess eins að sýna fram á að einhver allt of stór talningavél í Reykjavík hafi tilverurétt. Ruglið er með eindæmum og gæti aldrei orðið svo nema fyrir tilstilli þess rekstraforms sem fyrirtækið er rekið á.
![]() |
Vilja úttekt á póstlögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bóndi er bústólpi
7.11.2023 | 07:23
Traustir skulu hornsteinar
hárra sala;
í kili skal kjörviður;
bóndi er bústólpi,
bú er lendstólpi,
því skal hann virður vel.
Svo orti Jónas Hallgrímsson árið 1840.
![]() |
Þarf að upphefja starfsheitið bóndi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er næs að vera eldfjallafræðingur
31.10.2023 | 16:58
Það er næs að vera eldfjallafræðingur á Íslandi, þessi misserin. Jörð skelfur og jörð bólgnar.
Kannski er þetta kvikuinnskot, kannski ekki. Kannski verður það að gosi, kannski ekki.
Eitt er þó víst að það mun gjósa. Kannski þarna en kannski einhverstaðar annarsstaðar. Kannski fljótlega en kannski ekki fyrr en einhvertímann seinna, jafnvel löngu seinna.
En það mun gjósa. Við munum láta ykkur vita hvar og hvenær - eftir að það er hafið.
![]() |
Kvika gæti komið upp í jarðskorpuna við Bláa lónið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Blórabögglar sögunnar
29.10.2023 | 08:46
Við Íslendingar höfum gjarnan fundið okkur blóraböggla, þegar eitthvað á bjátar. Okkur er kennt að landið hafi verið svikið undir Noregskonung, fyrst og fremst af einum manni, Gissuri Þorvaldssyni. Þetta er hin opinbera saga, sem börnum er innprentuð. Mun líklegri er þó sú skýring sem nýdoktorinn heldur fram, að þar komi tíðarfar frekar við sögu. Að svo hafi verið að þjóðinni kreppt vegna harðinda að eina lausnin var að leita á náðir Noregskonungs. En sú skýring er ekki eins "skemmtileg" og hin, að hafa blóraböggul.
Þetta kemur víðar fram. Gegnum aldirnar hafa harðindi oft verið mikil og alls kyns óáran. Þessa sögu má finna, en aldrei gerð tilraun til að setja hana í samhengi við aðrar staðreyndir okkar sögu hér á landi. Vitað er að við landnám var veðurfar mun mildara en nú, vitað er einnig að á þrettándu öld breyttist þetta til hins verra og hélt sú þróun áfram næstu sex sjó aldir. Mikil harðindi í bland við eldgos og hafís með tilheyrandi fjárfelli og aflabresti, leiddu til þess að við lá að þjóðin færist að fullu og öllu. Reyndar má segja að þetta tímabil hafi staðið allt fram í byrjun tuttugustu aldar, en síðasta alvöru kuldaárið var 1918, þegar gengt var milli Akranes og Reykjavíkur á ís. Eitthvað sem ekki var svo framandi landsmönnum á þeim tíma, einungis liðin rétt rúm þrjátíu ár frá því slíkt gerðist þar áður. Þætti líklega hamfarir í dag.
Þrátt fyrir þessa þekkingu okkar á veðurfari fyrri alda, þrátt fyrir að við vitum að hér var mjög hlýtt við landnám, svo hlýtt að trjágróður var í blóma, og þrátt fyrir að við vitum að mikill mannfellir var og fjárfellir með eindæmum, vegna kulda og eldgosa, þurfum við að finna okkur blóraböggla til að skýra hina ýmsu þætti sögu okkar. Þætti sem einfaldast og sennilega réttast er að skýra með náttúruhamförum.
Þarna má til dæmis nefna minnkandi gróðurfar og landeyðingu. Þar er ekki einn blóraböggull nefndur heldur heil tegund spendýra, sauðkindin. Henni er kennt um að hafa étið allan gróður landsins, þrátt fyrir að vitað sé að fjárstofninn hér á landi hafi verið mjög smár allt fram yfir miðja tuttugustu öld. Kuldar og eldgos eiga þar sennilega stærri hlut en blessuð kindin okkar. Henni tókst hins vegar að halda lífi í þeim fáu hræðum landsmanna sem lifðu af allar þessar hamfarir og ber frekar að þakka en lasta.
Veðurfar hefur alla tíð haft mikil áhrif á söguna. Á hlýtímabilum hefur mannkyni vegnast vel en á kuldatímum hefur verr farið. Jafnvel farið að kenna íslensku eldgosi og þeirri óáran sem því fylgdi, um byltingu í Frakklandi.
Okkur er kennt að landnám hafi verið um árið 870. Margir efast þó um þá sögu. telja það hafa hafist nokkru fyrr og jafnvel af öðrum en víkingum. Hvað um það, tölum bara um það sem okkur var kennt. Hér var stofnað þjóðveldi með Alþingi árið 930. Á þessum tíma var búsældarlegt hér á landi og bera mörg staðarnöfn þess merki að akuryrkja hafi verið ríkjandi um allt land, þar sem bleikir akrar bylgjuðust í sólinni. Þetta tímabil stóð yfir í rúmar þrjár aldir, eða þar til kólna tók. Þá gengu Íslendingar Noregskonungi á hönd, sennilega fyrst og fremst vegna þess að vart var lengur búandi hér á landi, vegna kulda. Þá höfðu landsmenn barist á banaspjótum um nokkra áratuga skeið og í sannleika sagt má kannski segja að Gissuri hafi þarna tekist að bjarga landinu frá algjörri eyðingu.
Við vorum síðan undir erlendum yfirráðum næstu sex og hálfa öld, eða þar til fór að hlýna aftur. En sælan stóð ekki lengi. Strax við stofnun hins síðara sjálfstæðis þjóðarinnar, voru uppi efasemdarraddir. Það tók þær hins vegar nokkra áratugi að ná eyrum þjóðarinnar og þegar síðara lýðveldið var einungis tæpra hálfrar aldar gamalt tók Alþingi ákvörðun um að deila sjálfstæði þjóðarinnar með erlendu þjóðarbandalagi. Sú deiling á sjálfstæðinu stendur enn og er aldrei meiri en nú. Ekki er langt í að engu fleiru verði deilt af íslensku sjálfstæði, að þjóðin verði ekki lengur sjálfstæð nema að nafni til. Það mun verða áður en hægt verður að halda upp á aldarafmæli sjálfstæðis okkar, hins nýja.
En þarna er ekki hægt að kenna náttúruöflunum um. Veðurfar hefur batnað, þó enn sé nokkuð í land að það nái því sem var við landnám og fyrstu aldir þess. Eldgos er frekar fátíð og oftar en ekki mjög smá í sniðum, svona einskonar túristagos. Öl merki þess, út frá náttúrunnar hendi, eru því til þess að hér væri hægt að lifa blómlegu lífi með öflugu sjálfstæði.
Hvað verður um Ísland ef aftur kólnar og aftur fara að verða hér stórgos. Víst er að við eigum engan Gissur Þorvaldsson okkur til bjargar og jafnvel þó einhver jafnoki hans fyndist, verður samningsstaða hans frekar léleg. Hefur engu úr að spila því þegar hefur verið kastað öllum trompum af hendi. Því er nokkuð ljóst að ef aftur kólnar hér á landi, í líkingu við það sem hér hefur verið á meira en helmingi þess tíma er við höfum búið hér á landi, mun byggð leggjast af. Við munum ekki geta lifað slíka tíma.
Því er nokkuð súrt að ráðamenn þjóðarinnar berjast með oddi og eggi í að reyna að breyta því sem ekki verður breitt, veðurfarinu og það til hins verra. Það er fyrst og fremst gert með skattlaggniungu og skerðingu á lífskjörum fólks, gera þjóðina enn berskjaldaðra fyrir því þegar aftur kólnar. Og það mun kólna aftur.
Hvenær veit enginn en sagan kennir okkur að ekkert veðurfar á jörðinni er hið eina rétta. Við þurfum enga blóraböggla til að skýra þær breytingar, eða efleiðingar þeirra.
![]() |
Harðindi hröktu okkur í faðm Hákonar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)