Flatneskja stjórnmálanna

Mikið hefur verið rætt um vanda stjórnmálaflokka hér á landi og það litla fylgi sem þeir ná meðal þjóðarinnar. Þó skal engan undra, flatneskjan og popppúlisminn sem ríkir meðal stjórnmálamanna er slíkur að engan greinarmun er lengur hægt að gera milli flokka. Örlítill munur er á boðun þeirra til kjósenda, svona rétt meðan verið er að sækja atkvæðin, en þegar til valda er komið er fljótt að falla undan stóru orðunum. Þá er meira horft til skoðanakannana, athugasemdadálka netmiðla og þeirra sem hæðst láta í þjóðfélaginu. Grunngildin fjúka og kjósendur standa eftir sviknir og vonlausir.

Þegar síðan fram koma stjórnmálamenn sem þora, er samstundis ráðist gegn þeim. Slíkar árásir andstæðinga í pólitík er eðlileg og skapar líflega umræðu, meðan á henni stendur. En þegar samherjar taka þátt í þessum árásum, er fokið í flest skjól, sér í lagi þar sem kjósendur kalla með örvæntingu eftir fólki sem þorir í pólitík.

Allir þekkja sögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í pólitík. Hvernig hann kom á sjónarsvið íslenskrar pólitíkur í framhaldi af bankahruninu, hvernig málflutningur hans var innan og utan þings, meðan hann var í stjórnarandstöðu, hvernig honum tókst að færa Framsóknarflokknum stórsigur í síðustu kosningum og síðan hvernig hann var myrtur mannorði af hálfu eins manns, með aðstoð ríkisfjölmiðils Íslands.

Strax og SDG tók til við að skipta sér að pólitík, hér á landi, hófust skipulagðar árásir gegn honum. Þar gekk fréttastofa ruv í fararbroddi og mun sennilega verða rannsóknarefni framtíðar framganga þess fjölmiðils gegn honum í undanfara síðustu kosninga og síðan látlausar árásir allt þar til hann var felldur í margfrægum Kastljósþætti. Þar var endanlega gengið frá mannorði SDG, á hæpnum forsendum.

Einn maður, sem hefur þá einu menntun að hafa skilað 17 einingum frá fjölbrautarskóla, fékk í hendur stolin skjöl frá lögfræðistofu í Panama. Í tíu mánuði lá þessi lítt menntaði maður yfir skjölunum og flokkaði þau, sjálfsagt eftir bestu vitund, en skorti alla menntun til starfans. Að lokinni þessarar vinnu, fékk þessi maður fyrrverandi vinnuveitanda sinn sér til fulltingis við "opinberun sannleikans". Svo vel vildi til að þessi fyrrum vinnuveitandi mannsins var einmitt fréttastofa ruv, sú sem lengst og harðast hafði gengið í baráttunni gegn SDG.

Búið var til handrit, í samvinnu við sænska fréttastöð og leikritinu varpað til þjóðarinnar. Engin bein haldbær gögn voru lögð fram, einungis óskýrt ljósrit af pappír þar sem nafn SDG kom fram, án hans undirskriftar. Engan skal undra að viðbrögð SDG í þessari sjónvarpsupptöku voru vandræðaleg, enda komið að aftanað honum. Það er auðvelt að segja að hann "hefði" átt að gera þetta eða hitt, en ljóst er að fáum eða engum hefði tekist að svara þessari árás, svo óvænt sem hún var. Þar að auki var leikritið þannig upp sett að nokkuð er sama hvernig viðbrögð SDG hefðu orðið, leikritshöfundar höfðu slíka yfirburði að þeim hefði í öllu falli tekist ætlunarverk sitt.

Það liggur ljóst fyrir að hvorki bókhaldslærðir né löglærðir aðilar voru látnir lesa handrit aftökunnar, enda hefði þá sennilega þetta verið stöðvað af. Það liggur einnig ljóst fyrir að fréttastofa ruv braut alvarlega lög með útvörpun þessa þáttar, bæði eigin siðferðislög sem og landslög.

Engum hefur enn tekist að sýna fram á sekt SDG. Helstu sérfræðingar Guardian hafa farið yfir málið og segja enga sök hans vera til staðar. Þá hefur Guðbjörn Jónsson rannsakað þetta mál, svo vel sem má, samkvæmt gögnum Panama skjalanna og ættu allir að lesa þá úttekt hans. Nú, þegar flestum er ljóst að SDG er ekki sekur í þessu máli, er því haldið fram að hann hafi brotið siðferði og skaðað trúverðugleik sinn. Hvernig má það vera þegar til þess meinta brots er stofnað með siðferðisbrot? Hver er þá trúverðugleiki fréttastofu ruv?!

Hvernig má það vera að þjóðin leggur meiri trúnað í framsetningu fréttastofu ruv, byggða á orðum og gögnum frá manni, sem hann lá á í tíu mánuði og flokkaði, án nokkurrar þekkingar á því sviði, en orð æðsta manns þessa lands, sem hefur sýnt og sannað að hann hefur kjark til að standa við stóru orðin?! Er afl fjármagnsins svo gífurlegt hér á landi að þeim tekst að sannfæra þjóðina um að fyrirlýta það fólk sem þeim öflum stafar ógn af?!

Eygló Harðardóttir er nú undir árásum fréttastofu ruv. Hennar mannorð skal svert eða drepið. Þó gerði hún það eitt að standa á sinni sannfæringu, sannfæringu sem hún hafði þegar gefið út innan ríkisstjórnar.

Ásmundur Einar Daðason, Frosti Sigurjónsson og Vigdís Hauksdóttir hafa sagt að þau ætli ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi starfa á Alþingi. Allt var þetta fólk, ásamt SDG. EH og fleira fólki innan Framsóknarflokks, lykilfólk í andstöðunni við icesave samningana, allt var þetta fólk afgerandi í sigri Framsóknarflokks í síðustu kosningum og allt hefur þetta fólk verið í lykilstöðu þess að tókst að láta kröfueigendur borga sig út úr þjóðfélaginu. Þetta fólk hefur verið helsta baráttufólkið gegn fjármagnsöflunum og haft kjark til að standa á þeirri sannfæringu. En þegar slík sannfæring og vinna færir fólki bara eintóman óhróður, er ekki undarlegt að það gefist upp. Þegar fólk vinnur stórvirki fyrir þjóðina, en þjóðin stendur óhaggað með þeim sem pínir hana, fjármagnsöflunum, er til lítils að sóa lífi sínu í það.

Það er ekki nema eðlilegt að andstæðingar í stjórnmálum gleðjist þegar óvinurinn lendir í vanda, að ekki sé talað um að þeir séu nánast hálshöggnir í beinni útsendingu. Það er og á að vera eðlilegt, svo fremi að heiðarlega sé að máli staðið. Pólitískir andstæðingar ættu þó aldrei að nýta sér mannorðsmorð andstæðingsins, mannorðsmorð byggt á hæpnum forsendum, sér til framdráttar.

Hitt er verra, þegar samherjar í pólitík nýta sér slíkt. Því miður er það svo að nokkrir samherjar eru ávallt fljótir til þegar á ofangreint fólk er ráðist. Þar hafa samherjar í samstarfsflokknum gengið hvað lengst og sumir jafnvel líkt þessu við súkkulaðinammi. Ljótari er þó leikur sumra samflokksmanna þessa fólks. Þar er vissulega fínna farið í málin, þó sannarlega maður hafi séð hlakka í mörgum liðleysingja Framsóknarflokks, sér í lagi vegna mannorðsmorðs Sigmundar Davíðs. Þar telja sumir sig eiga harma að hefna, meðan aðrir sjá hugsanleg tækifæri í að klifra örlítið upp stigann. Þetta fólk hefur ekki burði til að koma sér upp á eigin verðleikum og nýtir því ófarir annarra til að upphefja sig.

Það voru því mikil vonbrigði að sjá að nýjasti starfsmaður Framsóknarflokks, hin unga Lilja Alfreðsdóttir tók sér stöðu gegn kjarkfólkinu innan flokksins. Framtíð hennar í stjórnmálum verður ekki bjartari við það.

Flatneskjan í íslenskum stjórnmálum er nánast ógeðslegt fyrirbrigði. Eitt orð hefur verið fundið upp í íslenskri tungu, hin síðari ár, það er orðið "samræðustjórnmál". Samkvæmt skilgreiningu þeirra sem þetta orð nota, þá eiga allir flokkar að vinna saman og komast að sameiginlegri niðurstöðu. Til hvers þarf þá að kjósa? Má þá ekki bara skipa hverjum stjórnmálaflokk ákveðinn fjölda þingmanna og spara þá fjármuni sem fer í kosningar? Ef þeir sem lægri hlut hljóta í augum kjósenda eiga að hafa sömu völd og hinir sem þóknast kjósendum, þarf ekki að kjósa.

Stjórnarandstaðan fagnaði afsögn SDG og segir að meiri friður hafi skapast á Alþingi. Réttara er að tala um að stjórnarandstaðan hafi fengið aukið afl innan Alþingis, vegna liðleskju þeirra sem eftir sátu í ríkisstjórn. Er það svo í anda lýðræðisins, að þeir flokkar sem kjósendur höfnuðu í síðustu kosningum, ráði hvernig þeir flokkar sem þjóðin treysti, stjórnar? Þetta er hin sanna birtingarmynd "umræðustjórnmála", hin sanna flatneskja íslenskra stjórnmála.

Þegar ég geng til kosninga þá kýs ég þann stjórnmálaflokk sem hefur stefnu sem mér hugnast og fólk sem ég treysti. Ef vilji meirihluta kjósenda er mér sammála, þá ætlast ég til að stjórnunin verði samkvæmt þeirri stefnu, út allt kjörtímabilið. Ef meirihluti kjósenda er mér ekki sammála, þá sætti ég mig við það, uns kjörtímabilinu lýkur. Svo einfalt er það.

Málpípur fjármagnsaflanna mun aldrei getað breytt þeirri hugsun minni, í hvaða mynd sem þau birtast, hvort það er í formi fréttastofu, í formi "virkra í athugasemdum", né heldur í formi hávaðaseggja á götum og torgum!! 


mbl.is „Það eru þín orð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Magnaður ertu með þinn stíl! 

Helga Kristjánsdóttir, 22.8.2016 kl. 02:42

2 identicon

Set hér athugasemd sem ég setti inn á blog hjá Ómari þar sem hann er að leggja sitt til við grjótkastið í Sigmund Davíð, líkti honum við Jónas frá Hriflu að hans tími væri liðinn eftir góða spretti:

Mér sýnist staða Sigmundar Davíðs mun líkari stöðu Harðar Torfasonar um langt árabil. 

Eftir að Hörður sýndi það fádæma hugrekki að koma út úr skápnum og synda þannig á móti straum almannaálits varð honum ekki vært í landinu. 

Það sem þú kallar skotgrafahernað og ófriðaráráttu hjá Sigmundi sprettur líklega af þeim allt of sjaldgæfu eiginleikum sem hann hefur að þora að synda á móti straumnum. Þar telur margur sig eiga um sárt að binda sem ekki þorði og ekki gat.

Það er líklega alveg einstakt hvernig Íslendingar hafa náð frumkvæði í samningum við erlenda kröfuhafa eftir hrun fjármálakerfisins. 

Grikkir máttu t.a.m. þola að skuldir óreiðumanna voru ríkisvæddar með hörmulegum afleiðingum og eins bendir saga Argentínu síðustu áratuga ekki til þess að sjálfgefið sé að litlar þjóðir sleppi heilar úr klóm hrægammasjóða. 

Þessa vinnu leiddi Sigmundur Davíð pólitískt og væri eitt og sér nægt til að halda nafni hans á lofti. 

Því miður hefur vantað fleiri kjarkmenn eins og Sigmund til að stöðva ýmsar vondar ákvarðanir sem eins og taka sig sjálfar, t.d. eyðileggingu Reykjavíkurflugvallar og að hnoða niður spítala við Hringbraut. 

Miklu nær er að tala um vingulsstjórnmál en skynsemispólitík þegar stöðvað er við hverja þúfu og athugað hver hafi nú migið þar (samræðustjórnmál?) í stað þess að sinna sínu verki, efna sín loforð og klára kjörtímabilið.

Ögmundur Jónasson er reynslubolti úr pólitíkinni og kallaði í gær í útvarpsþætti eftir því að menn stunduðu átakapólitík.

Með brotthvari Sigmundar úr pólitíkinni þá sykkjum við dýpra niður í slepju embættismanna eða burókratapólitíkur þar sem enginn er ábyrgur,enginn veit hver tekur ákvarðanirnar, hvers vegna og lýðræðið sjálft fótum troðið.  

Bjarni Gunnlaugur 

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 11:14

3 identicon

Sæll Gunnar jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Gunnar síðuhafi !

Heyr á endemi: fornvinur góður.

Hefirðu orðið fyrir höfuðhöggi nýlega, eða ............ ?

Sigmundur Davíð: og þeir Ögmundur báðir, eru EINMITT:: helztu málsvarar svigurmæla og lyga í samfélaginu, og er þó af nægu að taka þar, frændi sæll.

Hver fjandinn - hefir hlaupið í þig, Gunnar minn ?

Hverju: hafa þessir menn bjargað ?

Sigmundur - lét ''leiðréttingarþega'' sjálfa, borga þann brúsa = grassérandi verðtrygging + okurvextir, viðvarandi á meðan á stóð, t.d. ! 

Nafna mín Kristjánsdóttir og Bjarni Gunnlagur !

Þið: bæði tvö, mynduð líklega vaða eld og eimyrju í þágu ALLRA ónýtra ísl. stjórnmálamanna, byðist ykkur tækifærið til, gott fólk.

Indverskir Fakírar - meira að segja, kysu frekar, að özla heiðar lega tendraða bálkesti, en að fylgja í blindni persónudýrkun viðlíkri, sem þið iðkið:: og það, grímulaust !

Með sæmilegum kveðjum: (mjög hófstemmdum) - af Suðurlandi, að þessu sinni /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 12:59

4 identicon

.... Bjarni Gunnlaugur: átti að standa þar, vitaskuld.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 13:18

5 identicon

Óskar Helgi, hér voru skrúfuð upp gerfiverðmæti allt að fimmfalt fyrir Hrun, kröfuhafar erlendir vildu leysa út sínar pappírskrónur á þessu gengi c.a. 120-130 kall dollarann. Þ.e. því gengi sem við notum til að verðleggja okkar raunhagkerfi gagnvart umheiminum. 

Slíkt hefði sogað hér öll raunverðmæti út úr hagkerfinu og valdið ómældum skaða um langa framtíð. 

Móti þessu varð að standa og var staðið undir styrkri stjórn Sigmundar Davíðs. Þarna er verið að tala um staðreyndir en ekki persónudýrkun. 

Að mótmæla persónuníði er ekki sama og persónudýrkun. 

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 14:07

6 identicon

Komið þið sæl - á ný !

Bjarni Gunnlaugur !

Allsendis: virðist þú aðdragandanum gleyma / eða, kýst að nefna hann ekki, að svo komnu.

Þeir skálkar: Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson, SEM ENN GANGA LAUSIR, komu hér á EES skipaninni, á 10. áratug síðustu aldar, eins:: og ég hugði mig ekki þurfa, að minna þig né aðra á Bjarni minn.

Fyrir var - EFTA stökkbrettið, en það dugði ekki græðgis öflunum.

Vinsamlegast Bjarni Gunnlaugur: ekki, ekki gera lítið úr þinni ágætu persónu, með því að verja þennan skelmi, sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er MARG búinn að sanna sig í, að vera.

Eða - sérðu ekki, hin ákveðnu tvíbura líkindi með honum - sem og gerpinu, sem öllu heldur í Heljarinnar greipum Kommúnistanna, austur í Norður- Kóreu samtímans, Bjarni minn ?

Eða: svo ögn aftar sé leitað, sem einskonar holdgerfing, þeirra Görings og Mússólínís:: = Sigmundur Davíð, samansettur úr þeim, jafnvel ?

Alla vegana - að ytra byrðinu, Bjarni Gunnlaugur.

Nefndu svo ekki: hugtakið staðreyndir, við mig né aðra Bjarni minn, þú veist / eða ættir að vita, að Sigmundur Davíð og Bjarni FALSON Engeyingur, eru hreinar og klárar strengjabrúður baktjalda stjórnenda landsins, þ.e. Frímúrara gerpanna - Bilderberg klúbbsins og annarra ámóta Myrkra afla, Bjarni minn Gunnlaugur !

Með sömu kveðjum: sem seinustu /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 15:06

7 identicon

Ég held ekki að það sé nokkur kraftur lengur í frímúrurum Óskar, hafi það þá nokkurntíman verið. 

Bildberg klúbbinn hef ég aldrei heyrt nefndan, er það eitthvað sænskt?

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 15:55

8 identicon

Komið þið sæl - sem fyrr !

Bjarni Gunnlaugur !

Jú: enn leynist drottnunar glóðin í Frímúrara fjöndunum, þó þeir fari leynt með pukur sitt og undirferli, sem alla tíð frá öndverð unni.

Bilderberg klúbburinn: er fjölþjóðlegur Kapítalízkur sérhagsmuna- og valdaklúbbur, sérílagi Vestrænna undirmálsmanna.

Hugði þig vita betur - en svo, Bjarni minn / en Sókrates heitinn kvað víst uppúr með það, misminni mig ekki, að því meira, sem hann læsi sér til um hlutina:: því betri grein, gerði hann sér, fyrir fávísi sinni / og þó: var hann einn allra mesti fjölfræðingur, sem til sögunnar hefir komið til þessa, að öðrum ólöstuðum.

Hinar sömu kveðjur - sem seinustu,, ögn mildari þó /    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 16:09

9 identicon

Ég á einmitt frænda, fjölfróðan mjög (en líklega krati og afskaplega andsnúinn Sigmundi Davíð) sem hvað upp úr með það á facebook nýlega að  hann væri alltaf að sjá betur og betur hve lítið hann vissi. 

Trúlega stoið þessu frá Sókratesi!

(líklega vita þeir nú samt heldur lítið sem eru að andskotast svona út í Sigmund Davíð, jafnvel þó þeir viti mikið)

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 21:14

10 identicon

Komið þið sæl - sem endranær !

Bjarni Gunnlaugur !

Svo mikið: hafa bræður mínir, í hinni Kínversku Kúómingtang hreyfingu Chiangs Kai- shek heitins (1887 - 1975) kennt mér / yst:: úti á Hægri brún Hernaðarhyggju og stjórnmála, að komi upp tortryggni í garð einhvers andstæðingsins (sbr. hérlendu stjórnmála fíflin, t.d.), að þeim skyldi ALDREI auðnast, að öðlazt tiltrú mína á ný, né margra annarra - í ljósi ferils þessarra svikahrappa, á alla vegu.

Þar með skyldi talinn - Sigmundur þessi Davíð þinn Bjarni minn / og vona ég fyrir þína hönd, að þér takist að opna augun fyrir því kviksyndi sóðaskapar og kviksyndis, sem þessir spéfuglar þínir standa fyrir:: og hafa staðið ÓÁREITTIR til þessa, Bjarni Gunnlaugur !

Sömu kveðjur - sem seinustu, vitaskuld /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband