Þjófótta þjóð
29.1.2016 | 06:56
Forsvarsmenn verslunar í landinu barma sér. Þeir segjast skila hverri krónu sem til verður vegna ytri aðstæðna um lækkun á vöruverði. Þeir segja Íslendinga þjófótta og ekki síst starfsmenn verslana.
Þrátt fyrir þetta, þrátt fyrir að verslunin segist ekki nýta sér ytri aðstæður til að hækka álagninguna og segjast halda henni í algjöru lágmarki og þrátt fyrir að Íslendingar ræni verslanir þeirra fyrir fjóra til sex milljarða króna á ári, er hagnaður verslunarinnar ævintýralegur. Svo mikill er hagnaður margra verslana í Íslandi, sérstaklega þeirra sem snúa að verslun með matvæli, að undrun þykir. Hagnaður Haga eins sér nam nokkrum milljörðum á síðasta reikningsári fyrirtækisins.
Það er hins vega ámælisvert að væna heila starfsstétt um þjófnað, hvað þá heila þjóð, eins og Andrés Magnússon gerir.
Er íslenskt starfsfólk þjófóttara? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.