Leikur kattarins að músinni
19.12.2010 | 09:11
Aðgerðir Isrelsmanna er líkastar því þegar kötur leikur sér að særðri mús. Fyrst er setið fyrir músinn, hún veidd og særð hæfilega mikið til að hún geti ekki flúið. Þá hefst leikurinn, sem getur staðið um nokkra stund, eða þar til líf músarinnar fjarar út.
Israelsmenn loka Palestínumenn innan múra, eitthvað stæðsta fangelsi sem þekkist. Þar eru þeir sveltir og lagt hald á öll hjálpargögn sem send eru til þeirra. Svo þegar einhver gefst upp og seilist eftir steini er hann samstundis skotinn til bana. Sumir eru kjarkaðri og smíða sér ófulkomna eldflaug, sem engin leið er að stjórna, lendir oftast í eyðimörkinni engum til skaða. Einstaka sinnum ná þær til byggða og einhverjir slasast, sárasjaldan hafa þessar eldflaugar valdið manntjóni, þó það komi vissulega fyrir. Þessum árásum svara Israelsmenn með því að senda hátækni herþotur á staðinn og skjóta flugskeytum af nýjustu gerð og drepa slatta af Palestínumönnum, algerlega óháð því hvort um er að ræða þá sem sendu heimatilbúna eldflaug út í eyðimörkina eða börn og konur. Nú bæta þeir um betur og senda þessi hátækni drápstæki sín af stað vegna "gruns" um að einhver gæti hugsanlega verið að smíða sér eldflaug. Séð er svo um að flugskeyti þeirra valdi svo miklu tjóni að útilokað er að staðfesta hvort einhver var að smíða eldflaug eða hvot þarna voru einungis börn að leik.
Það er kaldhæðni örlaganna að sú þjóð sem mest fékk að kenna á nasistum í seinni heimstyrjöldinn skuli nú beyta sömu aðferðum við aðra, að sú þjóð sem barðist gegn nasistum og átti stóran þátt í að stríðið við þá vannst skuli nú vera hellstu bandamenn Israelsmanna í helför þeirra gegn Palestínumönnum.
Oft hefur verið sagt að sagan fari hring. Vonandi verða Gyðingar ekki fyrir því, hætt er við að samúðin til þeirra, sem reyndar var frekar lítil fyrir seinni heimstyrjöldina, verði enn minni næst.
Fimm létust í loftárás á Gasa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nazistarnir í ísrael eru ótrúlegir...
Þetta er bara morðingjahyski upp til hópa
Hef ekki meir um það að segja í þetta skiptið.
Jón Ingi (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 10:50
clever icelander again!!! ridicilous. Change the life of sitting in your room and being clever to a life where you travel and see the real things.
Jacek (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 10:52
Hvernig eiga ísraelsmenn að verjast þessum morðóða múslimalíð sem hefur það markmið að útrýma öllum gyðingum? Ef málin stæðu öðruvísi, t.d. að múslimar héldu gyðingum í herkví, væru múslimar löngu búnir að myrða hvern einasta gyðing. Það er mesta furða hvað ísraelsmenn eru góðir við múslimana, þeir lifa í vellystingum innan múranna. Reyndu að opna augun og sjá hvað er að gerast þarna í raun og veru!
Brynjar (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 13:26
Já Brynjar... Einmitt
Taktu höfuð þitt úr r**** á þér og opnaðu augun.
Jón Ingi (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 15:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.