"ráðast í þetta sem stærri aðgerð og fyrr en upphaflega stóð til"

Það er eftir heilmiklu að slægjast í þessu á margan hátt,“ sagði Steingrímur J eftir mikinn átakafund í gærkvöldi. Hann sagði einnig að ráðast ætti í þessar framkvæmdir fyrr en upphaflega stóð til.

Hver er ávinningurinn? Hvert er tapið? Þessum spurningum verður að svara áður en breytingar geta átt sér stað. Á kannski að keyra þetta mál í gegn með hraði, áður en nokkur áttar sig á því hvort þetta er til góðs eða ills? Það er ekki nóg að segja að eftir ýmsu sé að slægjast, það verður að koma fram hvað það er og hvað það kostar"

Það er allavega ljóst að Jóhanna hefur haft betur í þessari orustu, nú er komið að Steingrími að reyna að fá sitt fólk til að hlýða. Það gæti reynst honum erfitt, margir þingmenn VG eru efins um þessar breytingar og vilja skoða málið vel áður en að stað verður farið.


mbl.is „Breytingar eru í farvatninu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband