RÍKIÐ borgar bara!!
25.1.2010 | 20:56
Ríkið hefur nóg á sinni könnu þó þeir fari nú ekki að bjarga þeim sem létu eins og fáráðlingar í góðærinu. Þessir menn sem stjórnuðu Álftanesi síðustu ár eru algerlega vanhæfir og fóru langt út fyrir öll velsæmismörk í fjárfestingum, jafn vel þó að 2007 mælikvarði sé notaður. Ef ríkið hefur yfir að ráða allt að tveim miljörðum til að setja í svona mál held ég að þeim væri betur varið til öryrkja og aldraðra.
Ríkissjóður kaupi hlutabréf Álftaness í Fasteign | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Algerlega sammála.
Þeir ættu að skammast sín þarna á Álftanesi fyrir að leggja fram svona tillögu.Þvílík heimska!
Sveinn Elías Hansson, 25.1.2010 kl. 21:22
Langar að benda á það að það er þetta eru tillögur frá Á - lista á Álftanesi, þeir hinir sömu og settu okkur á hausinn. Eru ekki lengur við stjórn þar sem meirihlutinn sprakk (held að það sé einsdæmi að meirihluti sem samanstendur af einum flokki springi) Held þeir ætti að hafa vit á því að hafa sig hæga og segja sem minnst. Nógur er skaðinn orðinn.
Íbúi á Álftanesi (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.