Hvernig dettur mönnum í hug .......
10.2.2011 | 07:55
Hrein gjaldeyriseign Seðlabankans er um 90 miljarðar.
Ef icesave samningurinn verður samþykktur munum við þurfa að greiða strax eftir þá samþykkt 26 milljarða og á næsta ári rúmlega 10 milljarða í vexti, eða nokkuð vel yfir einn þriðja af hreinni gjaldeyriseign SÍ!!
Hvernig dettur mönnum í hug að dæmið geti gengið upp?
Hvernig dettur mönnum í hug að þjóð sem þegar er á barmi þjóðargjaldþrots, eigi auðveldara með að fá erlend lán þegar hún hefur tekið á sig enn frekari skuldir?
Hvernig dettur mönnum í hug að þjóð sem velur að stunda sín samskipti við erlendar þjóðir á grundvelli einhvers annars en alþjóða lögum og samningum, verði betur í stakk sett á alþjóðavettvangi?
Hvernig dettur mönnum í hug að samþykkja icesave nauðgun?
![]() |
Gengur verulega á gjaldeyrisforðann á árinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.