Draumaland vogunarsjóða

Ísland er draumaland erlendra vogunarsjóða, sjóða sem lifa á því að veðja á hörmungar annarra og græða á þeim. Stundum nefndir hrægammasjóðir.

Þessir erlendu sjóðir eru nú að yfirtaka Ísland, eru að eignast hluti í æ fleiri fyrirtækjum og bönkum. Fyrr en varir verða þeir komnir með ráðandi hlut í flestum stærstu fyrirtækjum landsins. Fyrsti bankinn er að falla þeim í hönd og hinir munu sjálfsagt fylgja á eftir.

Á Alþingi rífast menn svo um einhver smámál sem engu skipta, stundum mál sem eru fyrir löngu gleymd þjóðinni. Stóru málin, hvernig peningamálum þjóðarinnar skuli háttað, hvernig við viljum haga framtíð okkar, er ekki rætt á þessari æðstu stofnun landsins. Þar þora menn ekki að æmta gegn erlenda auðvaldinu.

Síðan "in the miricle of time" mun Soros svo mæta til að heimta sinn stól, stólinn sem Kata vermir fyrir hann þessa dagana!

 


mbl.is Vogunarsjóður með yfir 10% í Símanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Er þá ekki bara málið að fólk boycotti þau fyrirtæki sem þeir hafa fjárfest í, þegar þeir verða þess áskynja að það gerist og ég tala nú ekki um að einhver þeirra fari á hausinn, hætta þeir þá ekki að fjárfesta hér?

Hrossabrestur, 18.2.2018 kl. 14:40

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það getur reynst nokkuð erfitt, hrossabrestur, bæði vegna þess hversu víðfeðmt net þessara sjóða er orðið hér á landi, auk þess sem fyrrtæki eru nú yfirleitt ekki með lista yfir eigendur sína við innganginn.

Gunnar Heiðarsson, 18.2.2018 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband