Klukkan og lúpínan

Ţađ er sammerkt međ klukkuna og lúpínuna ađ árlega koma ţau af stađ umrćđukarpi. Ekki ćtla ég ađ rćđa lúpínuna núna, enda er hennar karptími á sumrin.

En nú er vetur og ţá er skylda ađ hafa skođun á klukkunni. Enginn er mađur međ mönnum nema láta sitt sjónarmiđ í ljós, helst ađ standa á torgum og hrópa hinn eina sannleik.

Ţetta er annars merkileg umrćđa og fyndnust verđur hún ţegar nćr líđur vori. Ţá koma ţeir fram sem vilja fćra klukkuna aftur um eina klukkustund, svo lengri tími fáist til ađ grilla í garđinum. Vilja í raun fćra hádegissólina til klukkan 14 - 14:30.

En ţađ er sama hversu mikiđ er hringlađ er međ klukkuna, sólin breytir ekki sínum gang og dagurinn lengistt ekki neitt. Ţau rök ađ skammdegiđ fćrist fyrr yfir landsmenn eru svo sem rök, ţó illskiljanleg séu. Skammdegiđ kemur á sama tíma, hvađ sem klukkunni líđur. Hitt er rétt ađ fleiri morgna vakna Íslendingar í myrkri, ţó ţađ segi ekkert til um lengd skammdegisins. Birta dagsskímunar er jafn löng fyrir fólk.

Hér var áđur fyrr vetratími og sumartími, ađ hćtti margra annara ţjóđa. Allt eins vćri hćgt ađ hafa vetrarvinnutíma og sumarvinnutíma. Ţađ myndi kosta svipađ og virka nákvćmlega eins. Ţ.e. ef fólk endilega vill vera ađ hrćra í ţessum hlutum. Eftir sem áđur kemur skammdegiđ í öllu sínu veldi og dagurinn mun verđa jafn langur, eđa stuttur. Ţađ er ekkert í mannlegu valdi sem getur breitt ţví. Jafnvel ţó klukkunni sé snúiđ á hvolf!

Hitt er svo annađ mál og kannski rétt ađ skođa, ađ klukkan okkar er ekki í samrćmi viđ sólarganginn, ţ.e. hádegi hjá okkur er á milli kl. 13 og 13:30. Ţađ er vel hugsanlegt ađ breyta ţessu, ađ fćra klukkuna á réttan tíma viđ sólina. En ţá á hún líka ađ vera svo yfir sumartímann, enda breytir sólin ekki gang sínum, ţó hún sjáist vissulega lengur. Sól ćtti alltaf ađ vera hćđst á himni í hádeginu, hvort sem sumar er eđa vetur.

Ađ fara aftur í ţađ rugl ađ hafa tvö tímatöl, eftir árstíđum, er fráleitt.

Jafn fráleitt og ađ ţekja okkar fallega land međ innfluttri lúpínu!

 

 


mbl.is Íslendingar úr takti viđ sólina
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband