Þeirra tími er liðinn.

Skilaboðin eru skýr: Farið frá!

Það er ljóst að þessi stjórn ætlar að skrifa undir nýjan samning eftir helgi, án samstöðu við stjórnarandstöðuna. Slíkum samning gæti þeim reynst erfitt að koma gegn um þingið. Auk þess er slíkur samningur í algerri andstöðu við þjóðarvilja.

Það er skelfilegt, þegar stjórnin á að vera að vinna að uppbyggingu landsins, skuli hún vinna gegn uppbyggingunni.

Það er líka skelfiegt þegar stjórnin getur ekki tekið ganrýni og framkvæmir hlutina í vonskukasti.

Skelfilegast er þó, þegar einsaklingar sem veljast til æðstu starfa fyrir land og þjóð, vita ekki hvenær þeirra tími er liðinn og víki fyrir nýju fólki.

 


mbl.is Skilaboð til ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Þór Saari segir réttilega á sínu bloggi: "Vonandi hafa þingmenn meirihlutans þroska til að endurmeta stöðuna nú, en það verða að vera þeir, því forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar munu ekki geta það."  Ótrúlegt að hlusta á Lady GaGa & SteinFREÐ enn og aftur "bulla & rugla" - SteinFREÐUR sagði að IceSLAVE yrði að klára á næstu vikum - RANGT - frekar augljóst að þessu máli verður ekki lent á farsælan hátt fyrir en þau (TRÚÐARNIR) stíga niður - ef þau segja bæði af sér, þá geta þau bjargað lífi þessara AUMU & stórhættulegu ríkisstjórnar, en því miður hafa þau ekki VIT á slíku.  Réttast væri nú að Lady GaGa myndi skila inn stjórnarumboði sínu enda valda þau skötuhjúin ekki verkefninu. 

Þau hafa ítrekað sýnt skelfilega slæma verkstjórn og ÞAU ráku burt eina ráðherrann sem reyndi að tala VIT inn í þeirra frosinn heila.  Þau vilja ekki hlusta á þjóðina eða Heilbrigða skynsemi, þá fer ekki vel.  Nú er mál að linni, þau valda ekki sínum störfum, frekar augljóst.  Ekki hljálpar heldur að Samspillingin er ekki "stjórntækur FLokkur" - það verður nóg að gera hjá Spunameisturum þeirra & Baugsmiðla að útskýra HÖFNUN þjóðarinnar á þeirra verkstjórn.  Í mínum huga eru þau skötuhjú stórhættuleg, nóg að hlusta á þau í sjónvarpinu hjá RÚV kl. 22:00 í kvöld, þar upplýstu þau enn & aftur að þau ætla að reyna að lenda IceSLAVE málinu á nótum UK & Hollands, svo þeirra stórhættulega ríkisstjórn geti haldið áfram.

Ég treysti því að ÞÚ, Birgitta, Framsókn, Ránfuglinn & flestir þingmenn VG standi gegn þeim skötuhjúum og verjið málstað okkar í þessari mikilvægustu utanríkisdeilu landsins EVER...!  Þorskastríðið var gríðarlega mikilvægt, en það sama má segja um Icesave.  Löngu tímabært að Lady GaGa HÆTTI að SUNDRA þjóðinni og fari að HLUSTA á þjóðina.  Hún á að vinna fyrir okkur, ekki EB - maður á ekki orð yfir HROKA & heimsku hennar.  Ítreka að lokum þá sorglegu staðreynd að þau verða að hætta sem ráðherrar, verkstjórn þeirra er skelfileg!

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 6.3.2010 kl. 23:40

2 identicon

Ég sé bara ekkert jákvætt þessa stundina. Nú er komin stjórnarkreppa ofan í allt annað. Við erum á hraðleið til glötunar. Ég hefði átt að sitja heima í stað þess að segja nei. Þessir rugludallar í stjórnarandstöðunni halda að ég hafi verið að greiða þeim atkvæði með nei-inu.

Hanna (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 23:57

3 identicon

grím og ljóskuna burt af landinu

guðmindi (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband