Að sjálfsögðu bíða þeir og vona

Auðvitað bíða hrægammarnir í ofvæni eftir nýrri vinstristjórn hér á landi. Kynni þeirra af íslenskri vinstristjórn veitir þeim enn von.

Síðasta ríkisstjórn, hin fyrsta tæra vinstristjórn á Íslandi, var erlendu hrægömmunum gjafmild og góð. Gaf þeim banka í bunkum og tryggði að þeir bankar gæti mergsogið íslenskan almenning.

Og auðvita ætla landsmenn að kjósa þetta fólk aftur yfir sig, vill endilega strita sem mest í þágu erlendra hrægammasjóða!

Var einhver að tala um Stokkhólmsheilkennið?!


mbl.is Erlendir krónueigendur bíða eftir kosningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, gullfiskaminnið lætur ekki að sér hæða... wink cool

Jóhann Elíasson, 25.10.2016 kl. 13:18

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Manni verður óglatt.

Takist þetta þá er ekki hægt að segja annað en að róg- og pólitísk herferð DDRÚV gengisins gegn Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, fjármögnuð með afnotagjöldum landsmanna, hafi tekist með glæsibrag. Svo tala þessir hrægammar um Argentínu á meðan DDRÚV stendur vaktina fyrir þá ókeypis.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.10.2016 kl. 15:55

3 identicon

Sælir: Gunnar síðuhafi jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Gunnar fornvinur Rögnvaldsson !

Hefði ekki DDRíkisútvarpinu verið nær / að kosta frítt far, undir ómerkinginn og stór- lygarann Sigmund Davíð Gunnlaugsson - AÐRA LEIÐINA, til tvíbura bróður hans:: Kim Jong un í Norður- Kóreu, jafnframt ?

Sigmundur: hefði getað haft Bjarna Vafning ENSON með í farteski sínu, sem og viðurstyggðirnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon,, ''glæstu'' fyrirennarana, frá 2009 - 2013.

Eða - hvað sýnist ykkur piltar, í ljósi allrar þeirrar hrörnunar og sí-vaxandi glæpavæðingar, sem þetta ofantalda lið hefir staðið fyrir undanfarin ár og misseri, í samfélaginu - Á ÖLLUM SVIÐUM ?

Með kveðjum: samt, af Suðurlandi /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.10.2016 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband