Jóhanna vill sitja en fólkið ræður!!

Jóhanna segist ætla að sitja út kjörtímabilið en það er ekki hennar að ákveða það.

Hún getur hins vegar stuðlað að því að hún fái að klára þetta kjörtímabil, en þá verður hún svo sannarlega að kúvenda skútunni. Það er engin hætta á að henni verði leift að halda sömu stefnu áfram.

Hún talar mikið um samráð og skammar alla sem ekki eru tilbúnir að fylgja henni að málum. Það er ekki spennandi að taka þátt í samráði eða samvinnu með stjórn sem hefur þegar sýnt að ekki er takandi mark á neinum loforðum frá. Það er ekki nema rúmt ár síðan þessi sama stjórn fór fram á samráð við aðila atvinnulífsins. Í því samráði voru málefni sem stjórnin lofaði að taka á, ekki var þornað blekið þegar byrjað var að svíkja það sem lofað var og ekki liðið árið þegar öll þau atriði sem stjórnin lofaði voru svikin. Svo dettur Jóhönnu virkilega í hug að fólk komi hlaupandi til sín þegar hún kallar!

Tími Jóhönnu kom, hennar tími er liðinn, löngu liðinn. Hún fékk tækifæri til að sanna sig og hafði sér við hlið eina mannin á alþingi sem gat með nokkuð góðu móti sagst vera stikk frí frá hruninu. Hvernig þau hafa spilað úr þessu tækifæri sínu er nánast óskiljanlegt. Þeim hefur á rúmlega einu og hálfu ári tekist að slá alla fyrrum ráðherra út í getuleysi, spillingu og svikum.

Fólkið í landinu er búið að fá nóg! Það verður ekki lengur unað við þetta ástand. Svik stjórnarinnar verður að stöðva strax. Ef Jóhanna ber einhverja tilfinningu fyrir landi og þjóð, segir hún af sér. Að öðrum kosti er víst að um byltingu verður að ræða, ekki er víst að sú bylting verð án skaða. Ábyrgðin er alfarið ríkisstjórnarinnar!!

 


mbl.is Jóhanna: sit út kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Það fer ekki á milli mála að Ríkisstjórnin hefur verið getulaus frá upphafi það er sama á hvaða sviði sem er ekkert nema svik og aftur svik.

Jón Sveinsson, 4.11.2010 kl. 08:46

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Hótanir Jóhönnu minna á ákveðinn ráðherra í Írak á sínum tíma sem sagði enga innrás vera hafna í Írak - á sama tíma var innrásarliðið búið að hertaka hluta landsins - þar á meðal flugvelli -

Austurvöllur kl 14 í dag.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 4.11.2010 kl. 11:06

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Lifi byltingin niður með flokksræðið!

Sigurður Haraldsson, 4.11.2010 kl. 12:12

4 identicon

Í tíð "vinstristjórnarinnar" hefur fátækt aukist til muna og kjör lítilmagnans hríð versnað, auk þess sem þessari stétt lítilmagnanum hefur fjölgað sem aldrei fyrr. Lítil börn róta nú í ruslinu í leit að mat og gamalmenni eru borin út á götu, og við erum orðin eina ríkið í okkar heimshluta sem neitar sumum ungmennum um skólagöngu, þó þau hafi náð öllum samræmduprófum, út af niðurskurði í menntakerfinu. Á sama tíma er hvergi skorið niður í yfirbyggingunni og milljörðunum sem hefði verið hægt að eyða í að laga mennta- og húsnæðismál og hjálpa bágstöddum öllum kastað á bálið í Brussel. Þetta hyski er ekki vinstrimenn. Ég er vinstrimaður. Vinstrimenn eru lýðræðislega hugsandi fólk sem sólundar ekki fé þjóðarinnar í einkahobbý sín, esb þruglið, meðan börnin róta í ruslatunnunum, heldur virðir jafnrétti manna og vilja fólksins og reynir að tryggja jöfn lífskjör allra. Þessi ríkisstjórn er aftur á móti tilbúin að brjóta lög og reglur í auðvaldsdýrkun sinni, í því skyni að sleikja sig upp við auðvaldið á kostnað almennings. Hæstaréttardómar eru jafnvel hunsaðir, svo sem gerðist í tilfelli Lýsingar, en dómurinn sem þá féll hefði getað forðað þúsundum frá gjaldþroti og vonarvöl. En ríkisstjórnin sýndi með því að hunsa þann dóm, nokkuð sem er víða ólöglegt og hefði eitt og sér nægt sem brottrekstrarsök fyrir ríkisstjórnina, þar sem þrískipt vald er tryggt með lögum í stjórnarskrá, sitt rétta eðli og fyrir hvern hún starfar í raun og veru. Annað hvort voru þau aldrei vinstrimenn, heldur bara Trójuhestar, eða þá eru þau pólítískar mellur sem einhver ill öfl borga undir borðið. Aðrar skýringar standast ekki nánari athugun. Síst af öllu gjammið í nýju trúarbrögðunum hans Steingríms sem hafa gert Davíð Oddsson að allsherjar grýlu og djöfli sem allt sem miður hefur farið í veraldarsögunni er að kenna, og gerir hans menn stikkfría frá öllu og þeir geta jafnvel notað tilvist Davíðs Oddssonar sem afsökun til að fremja hvaða glæp sem er "Skrattinn freistaði mín" = "Davíð neyddi mig til þess", en einungis einfeldningar taka svona bókstafstrú og óráðshjal trúanlegt, burtséð frá hvað manni þykir persónilega margt miður í fari pólítíkur Davíðs Oddsonar. Sannleikurinn blasir við. Þau eru kannski lýðræðislega kjörin, en það var Hitler nú líka. Lýðræðissinnar eru þau ekki, það hafa þau sýnt með að marg brjóta á fólkinu í landinu, jafnvel í trássi við Hæstarétt, sem þau óvirða eins og þeim sýnist. Hvort sem þau eru að þiggja mútur eða annað kemur til, þá eiga þau ekki skilið að sitja þarna lengi. Sagan sýnir að það að láta fasista og elítista sem óvirða sitt eigið fólk sitja í skjóli "lýðræðis" er stórhættulegt og veit ekki á gott. Við höfum valið, annað hvort kveðjum við land vort og þjóð bless, frelsi vor og mannréttindi, kjör og auðlindir......eða ríkisstjórn þessa. Við höfum þetta val ekki mikið lengur. Tíminn líður hratt að úrslita stund. Láttu ekki þitt eftir liggja http://www.utanthingsstjorn.is

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband