Björn Valur segir....

Björn Valur viðist ekki vita hvernig samningaviðræður fara fram og hvert hlutverk samninganefnda er. Kemur kannski ekki á óvart.

Hann segir "andstæðingarnir hafi komið í veg fyrir að samninganefndin (ath. ekki stjórnarmeirihlutinn) sendi svar til Breta og Hollendinga".

Samninganefnd hefur ekki umboð til að koma með tillögu sem er í bága við þá ákvörðun þeirra sem hún hefur umboð frá. Samninganefndin hefur umboð frá stjórn og stjórnarandstöðu. Ef það umboð á að breytast verður stjórnin að ákveða það og tilkynna stjórnarandstöðunni að samstarfi sé lokið.

Það er svo sem ekkert skrítið að Björn Valur reyni hvað hann getur til að koma í veg fyrir þessa samstöðu.

Sú fullyrðing Björns Vals, að það verði að skýrast fyrripart dags, hvort samninganefndin hafi umboð frá stjórnarandstöðu er undarleg í meira lagi. Samninganefndin er með umboð frá stjórn og stjórnarandstöðu. Samninganefndin er því enn með fullt umboð. Nema stjórnin sé búin að rjúfa samstarfi formlega.

Hvort samninganefndin gefst upp á samstarfi við sína umbjóðendur finnst mér ákaflega ótrúlegt, enda vanir samningamenn á ferð.

 


mbl.is Trúnaðarbrestur í Icesave-samningum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Forsetinn færði valdið til þjóðarinnar í þessu máli, þannig að þessi nefnd ásamt ríkisstjórn og stjórnarandstöðu hefur ekkert umboð til að gera einhverja samninga um þetta fyrr en að skýr afstaða þjóðarinnar hefur komið fram í Þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 6. Mars.

Jón Jónsson (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband